Fara í efni  

Fréttir

Eirný ráðin verkefnisstjóri Brothættra byggða í Skaftárhreppi

Eirný Vals hefur verið ráðin „ Verkefnisstjóri  Brothættra byggða – Skaftárhreppur til framtíðar“,  hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.  Eirný mun hafa búsetu í Skaftárhrepp og hefja störf um næstu mánaðarmót.

Alls bárust 28 umsóknir. Sex umsækjendur voru teknir í viðtal og í framhaldinu var Eirný Vals ráðin.

Eirný hefur mikla þekkingu og reynslu af byggðamálum og starfi á vettvangi sveitarstjórna og verður góður liðsauki fyrir SASS, Byggðastofnun og Skaftárhrepp í krefjandi verkefni næstu missera.

Eirný segir að starfið leggist vel í sig, hún hlakki til að kynnast íbúum Skaftárhrepps og vinna með þeim að verkefninu. Hún er með meistarapróf í verkefnastjórnun, MPM, frá HÍ auk MBA frá sama skóla, einnig er hún rekstrarfræðingur frá Bifröst.

Hún hefur víðtæka reynslu af störfum fyrir sveitarfélög og ríki. Árin 1979 -1983 starfaði hún hjá Ölfushreppi (sem síðar varð Sveitarfélagið Ölfus) síðar var hún hjá Ísafjarðarbæ, Akraneskaupstað og Sveitarfélaginu Vogum.  Þá vann hún lengi hjá Rannís, Rannsóknamiðstöð Íslands, og auk þess var hún um tíma hjá Landsbanka Íslands og Íslandsbanka á Akranesi.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389