Fara í efni  

Fréttir

Eyrarrósarlistinn 2017 birtur

Eyrarrósarlistinn 2017 birtur
Verksmiðjan á Hjalteyri fékk Eyrarrósina 2016

Listi yfir þau sex verkefni sem eiga möguleika á því að hljóta Eyrarrósina í ár.

Alls bárust 37 umsóknir um Eyrarrósina í ár hvaðanæva af landinu. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa í sameiningu Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík.

Á Eyrarrósarlistanum 2017 birtast nöfn þeirra sex verkefna sem eiga möguleika á að hljóta verðlaunin í ár. Sjálfri Eyrarrósinni fylgir tveggja milljón króna verðlaunafé en að auki munu tvö verkefnanna hljóta 500 þúsund króna verðlaun.
Eyrarrósarlistinn 2017:

  • Alþýðuhúsið á Siglufirði
  • Eistnaflug, Neskaupstað
  • List í ljósi, Seyðisfirði
  • Nes - Listamiðstöð á Skagaströnd
  • Rúllandi snjóbolti, Djúpavogi
  • Vesturfarasetrið á Hofsósi

Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn þann 16. Febrúar næstkomandi í Verksmiðjunni að Hjalteyri, sem er handhafi Eyrarrósarinnar frá síðasta ári. Frú Eliza Reid, nýr verndari Eyrarrósarinnar mun afhenda verðlaunin.

Nánar um verkefnin á Eyrarrósarlistanum 2017:

Alþýðuhúsið á Siglufirði
Í Alþýðuhúsinu á Siglufirði er rekið metnaðarfullt menningarstarf allan ársins hring með áherslu á myndlist undir stjórn Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Þar eru einnig með jöfnu millibili haldnir tónleikar, fyrirlestrar og menningarviðburðir af ýmsum toga. Reglulega er listamönnum boðið að dvelja þar í skemmri tíma við eigin vinnu. Fastir viðburðir á dagskrá Alþýðuhússins eru t.d. menningardagur barna, gjörningahátíð, sunnudagskaffi með skapandi fólki, Reitir o.fl. Í ár fagnar Alþýðuhúsið 5 ára afmæli og heldur upp á það með veglegri afmælisdagskrá næsta sumar.
http://www.freyjulundur.is/freyjulundur/

Eistnaflug, Neskaupstað
Eistnaflug er rótgróin tónlistarhátíð sem haldin er á Neskaupstað aðra helgina í júlí ár hvert. Eistnaflug er eina tónlistahátíðin hér á landi þar sem höfuðáhersla er lögð á þungarokk og aðrar jaðartónlistarstefnur. Margar af þekktustu þungarokksveitum heims hafa komið fram á hátíðinni en hátíðin styður líka við bakið á ungum og upprennandi hljómsveitum og hefur rutt veginn fyrir íslenskar sveitir á erlendum útgáfu – og tónleikamarkaði. Skipuleggjendur eru stoltir af góðu orðspori Eistnaflugs sem „rokkhátíðar sem fer fram í bróðerni og samstöðu“. Um 50 rokksveitir munu koma fram á Eistnaflugi 2017.
http://www.eistnaflug.is

List í ljósi, Seyðisfirði
List í ljósi er í vetur haldin á Seyðisfirði í annað sinn, en henni er ætlað að verða að árlegum viðburði. Rík áhersla er lögð á samfélagsleg áhrif hátíðarinnar sem fer fram utandyra. Geta allir, ungir sem aldnir, tekið þátt í hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Á meðan á hátíðinni stendur er Seyðisfjarðarkaupstað umbreytt með ljósadýrð og spennandi listaverkum. Áhorfendur, sem um leið eru þáttakendur, upplifa á magnaðan hátt ýmis listaverk, allt frá innsetningum og videóverkum til stærri ljósaskúlptúra. Innlendir og erlendir listamenn taka þátt í hátíðinni sem bókstaflega lýsir upp Seyðisfjörð. Markmið hátíðarinnar er að styðja við menningarlíf Austurlands á lágönn og fagna komu sólar eftir þrjá langa og sólarlausa mánuði.
https://www.listiljosi.com

Rúllandi snjóbolti, Djúpavogi
Í gömlu Bræðslunni á Djúpavogi hefur alþjóðlega samtímalistasýningin Rúllandi snjóbolti verið haldin árlega frá árinu 2014 og styrkir stöðu sína með hverju ári. Um er að ræða eftirtektarvert og afar metnaðarfullt samstarfsverkefni Djúpavogshrepps og CEAC (Chinese European Art Center). Á sýningunni síðastliðið sumar áttu 32 íslenskir og erlendir listamenn verk á sýningunni og þannig er um að ræða eina stærstu samtímalistasýningu ársins hérlendis. Aðgangur á sýninguna var ókeypis og nutu bæði Austfirðingar og ferðamenn góðs af.
https://www.facebook.com/rullandisnjobolti7

Nes, Skagaströnd
Nes listamiðstöð á Skagaströnd var stofnuð árið 2008 og hefur verið rekin þar allar götur síðan. Fjölmargir listamenn hafa dvalið á Skagaströnd frá opnun listamiðstöðvarinnar en þar er rými fyrir allt að 12-15 listamenn í einu. Flestir kjósa að dvelja þar einn til tvo mánuði í senn. Mánaðarlegir viðburðir eru í listamiðstöðinni með virkri þátttöku heimamanna. Listamiðstöðin Nes hefur haft áhrif á nærsamfélag sitt og gefið íbúum á öllum aldri og gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttri listsköpun, bæði sem áhorfendur og sem virkir þátttakendur.
http://www.neslist.is/

Vesturfararsetrið, Hofsósi
Vesturfararsetrið hefur verið starfrækt frá 1996 og er megin tilgangur setursins að viðhalda og efla tengsl fólks af íslenskum ættum sem búsett er í Kanada og Bandaríkjunum og vill leita uppruna síns á Íslandi. Jafnframt aðstoðar Vesturfararsetrið Íslendinga í leit sinni að ættingjum í Vesturheimi. Markmið Vesturfararsetursins er að efla enn frekar áhuga fólks af íslenskum ættum á uppruna sínum og frændgarði á Íslandi. Fjölmargar sýningar hafa verið settar upp í húsnæði Vesturfararsetursins á Hofsósi sem eru allar til þessa fallnar að varpa ljósi á söguna og minnast þeirra fjölmörgu sem yfirgáfu Ísland í leit að betra lífi á seinni hluta 19. aldar og í upphafi þeirra 20.
https://www.facebook.com/Hofs%C3%B3s-Icelandic-Emigration-Vesturfarasetri%C3%B0-242769395758459/

Nánari upplýsingar um Eyrarrósina, veitir Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík vigdis@artfest.is s. 8990272


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389