Fara í efni  

Fréttir

Eyrarrósin 2017 afhent

Eyrarrósin 2017 afhent
Frá afhendingu Eyrarrósarinnar 2017

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík hafa undirritað samkomulag um Eyrarrósina til næstu 4 ára.  Með Eyrarrósinni er sjónum beint að að framúrskarandi menningarverkefnum á starfssvæði Byggðastofnunar, þ.e. utan höfuðborgarsvæðisins. Eyrarrósin vekur athygli á og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.  Verkefnið verður með líku sniði og verið hefur allt frá stofnun þess árið 2005, en þó hefur sú breyting verið gerð að verðlaunaféð er nú hækkað í 2 mkr.  Auk þess fá þeir tveir sem að auki eru tilnefndir til verðlaunanna 500 þkr. hver.

Eliza Reid forsetafrú er verndari Eyarrósarinnar og afhenti hana við hátíðlega athöfn í dag í Verksmiðjunni á Hjalteyri við Eyjafjörð, en Verksmiðjan fékk einmitt verðaunin í fyrra.  Alls bárust 37 umsóknir um viðurkenninguna og fær Eistnaflug tvær milljónir króna í verðlaunafé, auk viðurkenningarinnar. Um fimmtíu rokksveitir munu koma fram á hátíðinni í ár en þar hafa bæði komið fram þekktar íslenskar og erlendar hljómsveitir, auk þess sem stutt er við bakið á ungum og upprennandi sveitum. Aðaláherslan er lögð á þungarokk og aðrar jaðartónlistarstefnur.  Einnig voru tilnefnd til Eyarrósarinnar í ár Alþýðuhúsið á Siglufirði og Vesturfarasetrið á Hofsósi. 

Hér má sjá myndir frá afhendingu Eyrarrósarinnar.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389