Fara í efni  

Fréttir

Fyrsti stjórnarfundur Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn

Fyrsti stjórnarfundur Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn
Stjórn Rifs ásamt fylgdarliði

Fyrsti stjórnarfundur Rannsóknastöðvarinnar Rifs ses var haldinn á Raufarhöfn miðvikudaginn 11. júní sl. en stjórnina skipa eftirtaldir aðilar:

  • Þorkell Lindberg Þórarinsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðausturlands - formaður stjórnar.
  • Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands en hún er fulltrúi Háskólans á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar – varaformaður stjórnar.
  • Starri Heiðmarsson fagsviðsstjóri og fulltrúi Náttúrufræðistofnunar Íslands – ritari stjórnar.
  • Hlynur Óskarsson dósent og fulltrúi Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands.
  • Níels Árni Lund skrifstofustjóri og fulltrúi Norðurþings.

Fundurinn hófst á hádegisverði á Hótel Norðurljósum en síðan var fundað í gistiheimilinu Hreiðrinu, sem mun hýsa aðstöðu rannsóknastöðvarinnar til að byrja með.

Í upphafi fundar afhentu Kristján Þórhallur Halldórsson, starfsmaður Byggðastofnunar á Raufarhöfn og Þorkell Lindberg stjórninni staðfesta skipulagsskrá stöðvarinnar og báru henni um leið góðar kveðjur frá Aðalsteini Þorsteinssyni, forstjóra Byggðastofnunar og Bergi Elíasi Ágústssyni bæjarstjóra Norðurþings, en Byggðastofnun, Náttúrustofan og Norðurþing eru stofnaðilar stöðvarinnar.  Á fundinum var farið yfir næstu skref varðandi starfsemi stöðvarinnar og var mikill hugur í stjórnarmönnum um að  gera veg rannsóknastöðvarinnar sem mestan og bestan. Samþykkt var að stöðin myndi gerast formlegur aðili að INTERACT (International Network for Terrestrial Research and Monitoring in the Artic) sem er alþjóðlegt net rannsóknastöðva á heimskautasvæðum, en í þeirri aðild felast ýmis tækifæri fyrir starfsemi og rekstur stöðvarinnar. Auk þess lögðu stjórnarmenn áherslu á að stöðin verði kynnt sem víðast ásamt því að henni verði tryggt fjármagn til rekstrar næstu árin. Til framtíðar er stefnt að ráðningu framkvæmdastjóra fyrir stöðina. Vonir standa til að vísindamenn muni nýta sér aðstöðu stöðvarinnar strax í sumar.

Að loknum fundi var farið í skoðunarferð um Melrakkasléttu undir leiðsögn heimamannanna Guðmundar Arnar Benediktssonar frá Kópaskeri og Níelsar Árna Lund.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389