Fara í efni  

Fréttir

Opið fyrir umsóknir um Eyrarrósina

Opið fyrir umsóknir um Eyrarrósina
Eliza Reid forsetafrú

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík hafa allt frá árinu 2005 staðið sameiginlega að Eyrarrósinni; viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir Eyrarrósina 2017. Umsækjendur geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð utan höfuðborgarsvæðisins.

Af umsækjendum verða sex verkefni valin á Eyrarrósarlistann og af þeim hljóta þrjú verkefni tilnefningu til sjálfrar Eyrarrósarinnar. Eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina 2017, en henni fylgja 2.000.000 kr. peningaverðlaun. Öðrum tilnefningum fylgja einnig peningaverðlaun.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. janúar 2017. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir skal senda rafrænt til Listahátíðar í Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is

Nánari upplýsingar fyrir umsækjendur, þar með talinn listi yfir nauðsynleg fylgigögn umsókna má nálgast hér.

Eliza Reid nýr verndari Eyrarrósarinnar

Eliza Reid forsetafrú hefur tekið við hlutverki verndara Eyrarrósarinnar af Dorrit Moussaieff fyrrverandi forsetafrú. Dorrit eru færðar bestu þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og stuðning í gegnum árin, sem hefur skipt afar miklu máli fyrir verkefnið.  Eliza mun afhenda Eyrarrósina 2017 við hátíðlega athöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri í febrúar næstkomandi.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389