Fara í efni  

Fréttir

Samanburður fasteignagjalda á nokkrum þéttbýlisstöðum

Samanburður fasteignagjalda á nokkrum þéttbýlisstöðum
Fasteignagjöld 2015

Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu eins og undanfarin ár. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti og lóðarstærð er 808m2.

Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2014 og samkvæmt álagningarreglum ársins 2015 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Til að forðast skekkjur var útreikningur fasteignagjaldanna sendur á viðkomandi sveitarfélag og óskað eftir að athugasemdir yrðu gerðar ef um skekkjur væri að ræða. Tekið hefur verið tillit til þeirra ábendinga sem bárust.

Heildar fasteigna- og lóðarmat 31.12.2014

Fasteignamat er mjög mismunandi eftir því hvar á landinu er. Fasteignamat húss og lóðar á höfuðborgarsvæðinu, miðað við meðaltal, er 40,1 milljón og hefur hækkað úr 38,2 milljónum frá árinu áður.

Af þeim þéttbýlisstöðum sem skoðaðir voru utan höfuðborgarsvæðisins er matið hæst á Akureyri 33,6 milljónir, var 31,7 milljónir árið áður. Lægsta heildarmat undanfarin ár hefur verið á Patreksfirði og Vopnafjörður hefur verið með það næst lægsta. Nú hefur það snúist við. Matið á Vopnafirði er 11,1 milljón og á Patreksfirði 11,4 milljónir. 

% breyting heildarmats á milli ára

Mest hefur fasteignamatið hækkað milli ára á Hólmavík, um 12,6% og í Borgarnesi um 11,8%. Það lækkar hins vegar um 4,8% í Grundarfirði og um 4,7% á Ísafirði.

Þegar horft er á fasteignagjöldin breytist myndin verulega eins og undanfarin ár. Tekið skal fram að hér er horft til allra svokallaðra fasteignagjalda, það er fasteignaskatts, lóðarleigu, fráveitugjalds, vatnsgjalds og sorpgjalda. Meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu gefur ekki hæstu fasteignagjöldin. Því valda álagningarreglur einstakara sveitarfélaga. 

Fasteignagjöld 2015

Gjöldin eru nú hæst á Húsavík, 329 þúsund, næsthæst á Grundarfirði 319 þúsund og þriðju hæst í Stykkishólmi 318 þúsund. Á síðasta ári voru gjöldin upp á 319 þúsund hæst á Grundarfirði. Lægstu gjöldin líkt og í fyrra eru á Vopnafirði 167 þúsund en voru 164 þúsund.

Gjöldin á Vopnafirði í ár eru 51% af gjöldunum á Húsavík og er það svipaður munur á hæstu og lægstu gjöldum frá fyrra ári.

% breyting fasteignagjalda milli áranna 2014 og 2015

Mesta hækkun fasteignagjalda á milli áranna 2014 og 2015 er 23% eða 59 þúsund í Borgarnesi. Mest lækka gjöldin á Siglufirði um 7,7% eða 18 þúsund.

Rétt er að taka fram að sveitarfélög veita mismunandi þjónustu til dæmis hvað varðar sorpurðun og förgun og er sums staðar rukkað fyrir þjónustu sem er innifalin í gjöldum annars staðar. Þá er og rétt að vekja athygli á því að á einstaka stað er fasteignamat mismunandi eftir hverfum á framangreindum stöðum. Loks er ástæða til að vekja athygli á því að í sveitarfélögum með fleiri en einn þéttbýliskjarna er fasteignamatið mjög mishátt eftir kjörnum og þar með fasteignagjöldin. Sama á við um dreifbýli. Fyrir kemur að mismunandi reglum er beitt við útreikning lóðarleigu innan sama þéttbýlis, til dæmis vegna þess að eldri samningar kveða á um aðrar reikniaðferðir. Hér er miðað við nýjustu samninga.

Hér má finna töflur og myndir. 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389