Fara í efni  

Fréttir

Samanburður fasteignagjalda á nokkrum þéttbýlisstöðum

Samanburður fasteignagjalda á nokkrum þéttbýlisstöðum
Þróun heildarfasteignagjalda 2014 - 2016

Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu eins og undanfarin ár. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti og lóðarstærð er 808m2.

Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2015 og samkvæmt álagningarreglum ársins 2016 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Til að forðast skekkjur var útreikningur fasteignagjaldanna sendur á viðkomandi sveitarfélag og óskað eftir að athugasemdir yrðu gerðar ef um skekkjur væri að ræða. Tekið hefur verið tillit til þeirra ábendinga sem bárust.

Heildar fasteigna- og lóðarmat 31.12.2015

Fasteignamat er mjög mismunandi eftir því hvar á landinu er. Fasteignamat húss og lóðar á höfuðborgarsvæðinu, miðað við meðaltal, er 43,4 milljón og hefur hækkað úr 40,1 milljónum frá árinu áður eða um rúm 8%.

Af þeim þéttbýlisstöðum sem skoðaðir voru utan höfuðborgarsvæðisins er matið hæst á Akureyri 35,4 milljónir, var 33,6 milljónir árið áður. Lægsta heildarmat undanfarin ár hefur verið til skiptis á Patreksfirði og Vopnafirði. Matið á Vopnafirði er nú 12,0 milljón og á Patreksfirði 11,7 milljónir.

%breyting heildarmats milli áranna 2015 og 2106

Mest hefur fasteignamatið hækkað milli ára í Suður-Þingholtunum, um 11,1% og á Selfossi um 10,4%. Það lækkar hins vegar á þremur stöðum, um 5,1% í Grindavík,  um 3,0% á Hólmavík og um 2,4% á Blönduósi.

Þegar horft er á fasteignagjöldin breytist myndin verulega eins og undanfarin ár. Tekið skal fram að hér er horft til allra svokallaðra fasteignagjalda, það er fasteignaskatts, lóðarleigu, fráveitugjalds, vatnsgjalds og sorpgjalda. Meðaltalið á höfuðborgarsvæðinu gefur ekki hæstu fasteignagjöldin. Mismunandi álagningarreglur einstakara sveitarfélaga skipta þar mestu.

Fasteignagjöld 2016

Gjöldin eru nú hæst í Borgarnesi, 351 þúsund, næsthæst í Keflavík 344 þúsund og þriðju hæst á Húsavík 330 þúsund. Á síðasta ári voru gjöldin upp á 329 þúsund hæst á Húsavík. Lægstu gjöldin líkt og í fyrra eru á Vopnafirði 180 þúsund en voru 167 þúsund. Gjöldin á Vopnafirði í ár eru 51% af hæstu gjöldunum líkt og í fyrra.

%breyting heildargjalda milli áranna 2015 og 2106

Mesta hækkun fasteignagjalda á milli áranna 2014 og 2015 var um 23% eða 59 þúsund í Borgarnesi. Þetta árið er 25% hækkun eða 55 þúsund á Siglufirði þar sem gjöldin lækkuðu mest í fyrra. Nú lækka gjöldin mest á Blönduósi 1,8% eða tæplega 5 þúsund.

Að lokum má hér sjá þróun heildarmats og fasteignagjalda síðustu þriggja ára.

Þróun heildarmats 2014 - 2016

 

Þróun fasteignagjalda 2014 - 2016

Rétt er að taka fram að sveitarfélög veita mismunandi þjónustu til dæmis hvað varðar sorpurðun og förgun og er sums staðar rukkað fyrir þjónustu sem er innifalin í gjöldum annars staðar. Þar sem rukkað er fyrir vatnsnotkun samkvæmt mælum er magnið áætlað miðað við stærð hússins. Þá er og rétt að vekja athygli á því að á einstaka stað er fasteignamat mismunandi eftir hverfum á framangreindum stöðum. Loks er ástæða til að vekja athygli á því að í sveitarfélögum með fleiri en einn þéttbýliskjarna er fasteignamatið mjög mishátt eftir kjörnum og þar með fasteignagjöldin. Sama á við um dreifbýli. Fyrir kemur að mismunandi reglum er beitt við útreikning lóðarleigu innan sama þéttbýlis, til dæmis vegna þess að eldri samningar kveða á um aðrar reikniaðferðir. Hér er miðað við nýjustu samninga.

Hér má finna töflur og myndir.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389