Fara í efni  

Fréttir

Styrkir til meistaranema 2016

Stjórn Byggðastofnunar ákvað á fundi sínum þann 15. apríl sl. að styrkja fjóra meistaranema sem vinna að lokaverk­efnum á sviði byggðamála. Heildarupphæð styrkjanna er 1 milljón. Tvö verkefni fá styrk að upphæð 350.000 hvort og önnur tvö styrki að upphæð 150.000 hvort. Verkefnin eru fjölbreytt að snúa að ferðamálum, skipulagsmálum, raforkuframleiðslu og flutningi ríkisstofnana.

Auglýsing um styrkina birtist þann 27. febrúar sl. og umsóknarfrestur rann út á miðnætti 31. mars. Alls bárust sex umsóknir. Áskilið var að verkefnin hefðu skírskotun til markmiða eða aðgerða byggðaáætlunar. Að beiðni stjórnar Byggðastofnunar fór stjórn Byggðarannsóknasjóðs yfir umsóknirnar og gerði tillögu um úthlutun. Stjórn Byggðastofnunar samþykkti tillöguna óbreytta.   

Verkefnin sem styrki hljóta eru:

From fish to tourism: Ferðaþjónusta sem tæki til byggðaþróunar. Upphæð 350.000.

Styrkþegi er Edda Ósk Óskarsdóttir, meistaranemi í ferðamálafræðum við Háskólann í Álaborg.

Rannsóknin snýr að því hvernig hægt er að nýta ferðaþjónustu sem tæki til byggðarþróunar í smærri samfélögum úti á landi, með tilliti til stefnumótunar ríkis og sveitafélaga. Reynt verður að varpa ljósi á þessa þróun og þau áhrif sem aukning ferðamanna hefur haft á þessi samfélög.

Akureyri – Vibrant town year round (vinnutitill). Upphæð 350.000.

Styrkþegi er Katrín Pétursdóttir, meistaranemi í sjálfbærri hönnun þéttbýlis við Háskólann í Lundi.

Verkefnið leitast við að samræma nýjustu stefnur í skipulagsmálum og íslenskar aðstæður í bæjarskipulag Akureyrar, bænum til framdráttar. Með því að leita leiða til að auka gæði bæjarlandslagsins og fullnýta möguleika bæjarins verður hann sterkari miðstöð fyrir fjórðunginn.

Samspil grunnvatns og rennsli Tungnaár. Upphæð 150.000.

Styrkþegi er Snævarr Örn Georgsson, meistaranemi í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands.

Í þessu verkefni er samspil grunnvatns við rennsli Tungnaár skoðað með fylgniútreikningum og lágrennsli árinnar skoðað sérstaklega með aðfallsgreiningu. Í framhaldi verður hægt að taka upplýstari ákvörðun um raforkuframleiðslu og miðlun á vatnasviðinu og tryggja öruggari raforkuafhendingu.

Flutningur ríkisstofnana. Viðhorf og líðan starfsmanna. Upphæð 150.000.

Styrkþegi er Sylvía Guðmundsdóttir, meistaranemi í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands.

Verkefnið er unnið út frá breytingastjórnun og snýr að flutningum ríkisstofnana út á land. Markmiðið er að kanna upplifun starfsmanna Fiskistofu af framkvæmd flutnings stofnunarinnar til Akureyrar og möguleg áhrif flutnings á líðan þeirra. Niðurstöðurnar verða notaðar til að benda á hvað fór vel og hvað hefði mátt gera betur út frá fræðum breytingastjórnunar.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389