Fara í efni  

Fréttir

Útlánastarfsemi Byggðastofnunar 2016

Mikil aukning hefur verið í lánsbeiðnum til stofnunarinnar síðustu ár eftir erfiða tíma í kjölfar fjármálahrunsins 2008.  Heildarupphæð lánsumsókna 2016 var um 4 milljarðar samanborið við 4,4 milljarða 2015 og 3,3 milljarða 2014. Samþykktar voru 70 umsóknir en 28 var synjað.

Lánasafn stofnunarinnar telur nú rúma 11 ma.kr. og skiptist nokkuð jafnt á milli landshluta, en ferðaþjónusta og landbúnaður eru fyrirferðamestu greinarnar eða um 26% hvor fyrir sig.

Árin 2014 & 2015 samþykkti stjórn Byggðastofnunar tvær nýjar tegundir lána.  Annars vegar lán vegna jarðakaupa eða kynslóðaskipta í landbúnaði, en þau lán eru með 5% verðtryggðum vöxtum til allt að 25 ára og möguleika á að greiða einungis vexti fyrstu 3 árin. Lánaflokkurinn var svo útvíkkaður árið 2016 og nær nú einnig til fjármögnunar endurbóta og /eða uppbygginga á húsakosti í landbúnaði.  Hins vegar lán til stuðnings fyrirtækjareksturs kvenna, en þau geta verið allt að 10 mkr. í hvert verkefni og til 10 ára.  Vaxtakjör eru verðtryggð þau sömu og af lánum til landbúnaðar eða 2% álag á REIBOR í óverðtryggðu. 

Á síðasta stjórnarfundi Byggðastofnunar, þann 17. febrúar 2017, var svo samþykktur nýr lánaflokkur vegna nýsköpunar.  Lánin eru sérsniðin að nýsköpunarverkefnum varðandi afborganaferli, lengd og tryggingar.  Nánari upplýsingar um lánaflokkinn koma á heimasíðuna á næstunni.

Hér má nálgast skýrslu um lánasafn Byggðastofnunar í árslok 2016.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389