Fara í efni  

Fréttir

Vel sótt byggðaráðstefna á Breiðdalsvík um sóknarfæri landsbyggða og ungt fólk

Rúmlega hundrað manns mættu og gerðu góðan róm að erindum og ávörpum.  Fyrri daginn voru m.a. kynntar nýlegar rannsóknir á þróun menntamála, um samfélagsleg áhrif stóriðju, og ferðaþjónustu og rannsóknir á viðhorfum brottfluttra kvenna og ungs fólks til búsetuskilyrða, lýðræðis og valdeflingar. Seinni daginn var sjónum beint að sóknarfærum landsbyggða og þróunarverkefnum.  

Í ávarpi Aðalsteins Þorsteinssonar forstjóra Byggðastofnunar kom  m.a. fram að staða ungs fólks er ekki bara mikilvægt byggðamál heldur grundvöllur þess að Ísland verði samkeppnishæft samfélag.  Staða ungs fólks hefur versnað á undanförnum árum, bæði hvað varðar launaþróun og húsnæðismál.  Íbúðarverð í sveitarfélögum utan höfuðborgarsvæðisins hefur hækkað mun minna frá árinu 2010 það eiga landsbyggðirnar að nýta sér sem sóknarfæri til að laða til sýn ungt fólk en meira þarf vitaskuld að koma til.  Innviðir þurfa að vera í lagi, gagnaflutningsleiðir þurfa vera greiðar um allt land ekki síður en vegasamgöngur.  Í tengslum við vinnu við gerð nýrrar byggðaáætlunar verða settar fram sviðsmyndir af mögulegri búsetuþróun á Íslandi árið 2030.  Sviðsmyndirnar verða kynntar á Byggðastefnuþingi í Reykjavík 27. september. 

Rástefnustjóri var Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi.

Byggðastofnun þakkar öllum sem tóku þátt í ráðstefnunni og stóðu að skipulagningu hennar innilegar fyrir.

Ráðstefnurit: Fyrirlesarar og ágrip erinda.

Glærukynningar.

Myndir frá ráðstefnunni.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389