Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Íbúaþróun á Íslandi

Íbúaþróun á landinu hefur verið með ákaflega mismunandi hætti á landinu undanfarin ár. Stóru línurnar eru þó að fólki hefur fjölgað mikið á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. Nokkur stöðugleiki hefur verið í íbúaþróun á Akureyri og í allra næsta nágrenni og á mið-Austurlandi. Víðast hvar annars staðar hefur fólki fækkað. Það er meðal hlutverka Byggðastofnunar að fylgjast með þessari þróun, enda ein af grunnforsendum varðandi gerð áætlana um þróun og styrkingu byggða á Íslandi. Sveitarfélög hafa sameinast til að valda betur verkefnum sínum og bæta þjónustu við íbúana og hefur þeim fækkað um 2/3, úr 229 árið 1950 í 74 sveitarfélög 1. janúar 2013. Hægt er að skoða á myndrænan hátt íbúaþróun áranna 1998-2013 eftir kyni, aldri, sveitarfélögum og landssvæðum (sóknaráætlanasvæðum) pr. 1. janúar ár hvert. Allar upplýsingar um íbúaþróun eru fengnar af vef Hagstofu Íslands.

Veljið landsvæði eða sveitarfélag, kyn, aldur frá og aldur til og smellið síðan á hnappinn Skoða þróun til að fá fram mynd af því hvernig þróun fólksfjölda hefur verið fyrir alla eða valdan hóp.

 

Landsvæði

Kyn

Aldur frá

Aldur til

 

Byggðastofnun  |  Ártorg 1  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455-5400  |  Fax 455-5499  |  byggdastofnun@byggdastofnun.is  |  Opið frá kl. 8:30-16:00  | kt. 450679-0389

Skráning á póstlista