NORA styrkir samstarf á Norður-Atlantssvæðinu
föstudagur 03.febrúar 2012 - Lestrar 3
Norræna
Atlantssamstarfið (NORA) vill efla samstarf á Norður-Atlantssvæðinu. Ein leiðanna að þessu markmiði er veiting styrkja tvisvar á ári til
samstarfsverkefna með þátttöku að lágmarki tveggja af fjórum aðildarlöndum NORA (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og
sjávarbyggðum Noregs).
Lesa meira
Það styttist í
starfstímabili ESPON 2013. Mörgum rannsóknaverkefnum mun ljúka árin 2012 og 13 og fá ný byrja fyrir 1. janúar 2014 þegar nýtt
starfstímabil hefst. Á síðustu misserum hafa komið fram yfirlýsingar um mikilvægi ESPON-starfsins, rannsóknanna, netverksins og gagnagrunnsins og
útlit er fyrir að framhald verði á starfi þessarar ESB-áætlunar um byggðarannsóknir.

Eyrarrósin er viðurkenning sem er veitt árlega einu
afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar á landsbyggðinni. Markmið með Eyrarrósinni er að stuðla að fagmennsku og
færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa
sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.









