Af starfi ESPON
fimmtudagur 09.júní 2011 - Lestrar 37
ESPON lýsir eftir
umsóknum um starf á skrifstofunni í Lúxemborg. Starfið er sérfræðivinna við mótun og samræmingu verkefna. Umsóknarfrestur er
til 20. júní. Sjá nánar hér.
Á fundi í Ungverjalandi þ. 19. maí sl. samþykktu ráðherrar svæðaáætlana og svæðaþróunar í
aðildarlöndum ESB nýja svæðastefnu ESB til 2020, Territorial Agenda of the European Union 2020. Mótun stefnunnar hefur farið fram fyrir opnum tjöldum
í langan tíma og hana má sjá hér. Svæðastefnan
og áhrif hennar hefur verið mikilvægt viðfangsefni fjölþjóðlegra rannsóknahópa sem sækja fjárstuðning til ESPON. Næst
mun ESPON kalla eftir umsóknum í ágúst nk. Sjá nánar hér.
Yfirlit yfir starfið í ESPON síðustu misserin má finna hér á síðunni með því að smella á ESPON merkið eða beint hér.









