Alþjóðleg ráðstefna Norðurslóðaáætlunar verður haldin í Iðnó, Reykjavík dagana 10.-11. nóvember 2009
miðvikudagur 14.október 2009 - Lestrar 87
Þema ráðstefnunnar er atvinnusköpun með áherslu á sóknarfæri sem felast í tengingu hefðbundinna atvinnugreina við skapandi greinar.
Í tengslum við ráðstefnuna verður kynning á fjölbreyttum verkefnum sem Ísland tekur þátt í innan
Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Lögð er áhersla á virkt samstarf og tækifæri sem liggja í samstarfi hefðbundinna atvinnugreina og skapandi iðnaðar. Hvernig getur aðkoma
skapandi greina aukið framþróun og virði fyrirtækja og stofnanna.
Þátttakendur verða yfir 100 og koma frá öllum 9 þátttökulöndum Norðurslóðaáætlunar þ.e. Noregi,
Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Írlandi, Skotlandi, Norður Írlandi auk Íslands.
Nánari upplýsingar og skráning þátttöku er á heimasíðu ráðstefnunnar, http://www.yourhost.is/lava09/home.html
Skráning þátttöku lýkur þann 20. október









