atvinnuvegurinn.is
Stuðningsumhverfi nýsköpunar hefur vaxið mikið á
síðustu árum og er oft á tíðum erfitt að átta sig á hvert hlutverk hvers og eins er í stuðningsumhverfinu. Síðustu
mánuði hefur teymi á vegum iðnaðarráðuneytis og undirstofnana þess unnið að kortlagningu þjónustu sinnar gagngert til að veita
betri þjónustu og ná auknum árangri í ráðstöfun opinberra fjármuna.
Afrakstur vinnunnar er nú að skila sér í opnun á nýjum og sameiginlegum vef fyrir ráðuneytið og undirstofnanir þess;
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ferðamálastofu, Byggðastofnun og Orkustofnun. Þessi nýi upplýsingarvefur heitir atvinnuvegurinn.isog er hugsaður sem
leiðarvísir um þjónustuframboð fyrrnefndra aðila þannig að einstaklingar og fyrirtæki geti á auðveldan hátt fundið
þá þjónustu og upplýsingar sem leitað er eftir. Á vefsíðunni er hægt að finna upplýsingar um þá
ráðgjöf og þjónustu sem stofnanirnar veita, þau námskeið sem í boði eru, styrki og fjármögnun, tölfræði og
skýrslur, leyfis- og gæðamál, tæknirannsóknir auk almennra upplýsinga um stofnanirnar og ráðuneytið. Þessi vinna er liður í
markvissu starfi innan ráðuneytisins sem miðar að því að koma á betra skipulagi á stoðkerfið eftir að ákvörðun var tekin
um það síðastliðið haust að greina stoðkerfi atvinnulífs og nýsköpunar á vegum iðnaðarráðuneytis með þarfir
atvinnulífsins að leiðarljósi.









