Efling verslunar í dreifbýli
Boðað er til
fjölþjóðlegrar ráðstefnu þar sem fjallað verður um úrræði til að efla litlar verslanir á landsbyggðinni.
Ráðstefnan verður haldin á Húsavík 8. nóvember næstkomandi í fundarsal Framsýnar, Garðarsbraut 26. Á
ráðstefnunni verða kynntar niðurstöður þriggja ára samstarfsverkefnis um málefni dreifbýlisverslana sjö þjóða á
norðurslóðum (Íslands, Finnlands, Noregs, Færeyja, Norður-Írlands, Írlands og Skotlands).
Tilgangur verkefnisins er að greina hvaða stuðningsaðgerðir koma sér best fyrir þessar verslanir, ekki síst á vegum sveitarstjórna og annarra
stjórnvalda, og koma á fót varanlegri þjónustu til að styðja við litlar verslanir.
Þátttakendur af Íslands hálfu eru:
- Rannsóknarsetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst
- Byggðastofnun
- Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
- SSNV- Atvinnuþróun
- Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga
- Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
Verkefnið er styrkt af Norðurslóðaáætlun ESB (NPP) og Norræna Atlantshafssamstarfinu (NORA).
Nánari upplýsingar er að finna um verkefnið á heimasíðu Rannsóknaseturs verslunarinnar
Hér er hægt að nálgast dagskrá ráðstefnunnar.
Gisting í tengslum við ráðstefnuna er á Fosshótel Húsavík
Hér er hægt aðskrá þátttöku á ráðstefnunni en opið er fyrir skráningar til 29. september nk.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Lilja Einarsdóttir, sigrunlilja@bifrost.is.









