Greiðslumark sauðfjár
þriðjudagur 02.febrúar 2010 - Lestrar 104
Heildarfjárhæð beingreiðslna á árið 2009 er 2.080 millj. kr. Árið 2009 er greiðsla á ærgildi kr. 5.645. Skv. reglugerð um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum og beingreiðslur er heimilt að flytja greiðslumark í sauðfjárframleiðslu milli lögbýla. Bændasamtök Íslands halda skrá yfir greiðslumark lögbýla (aðila að greiðslumarki) og handhafa réttar til beingreiðslna.











