Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Fréttir

Hagvöxtur landshluta 2003-2008

Skýrsla um Hagvöxt landshluta birtist nú fjórða sinn og að þessu sinni er fjallað um árin 2003-2008. Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir Byggðastofnun og í samvinnu við starfsmenn stofnunarinnar. Í skýrslunni eru tölur fyrir árið 2007 reiknaðar eins og áður en tölur fyrir árið 2008 áætlaðar.


Meginniðurstöður eru þær að hagvöxtur á landinu öllu var 6-7% á árunum 2004 til 2007, en stóð nær í stað á árinu 2008. Áhrif bankahrunsins gætir því ekki að fullu það ár og er líklegt að áhrif þess hafi ekki komið fram af fullum þunga fyrr en á árinu 2009. Hagvexti á tímabilinu er eins og áður mjög misskipt. Þannig var hagvöxtur á tímabilinu 2004-2008 41% og 44% á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum á meðan hann var 31% á Austurlandi, í kringum 20% á Suður- og Vesturlandi, nær enginn á Vestfjörðum og neikvæður á Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra.

Skýrsluna í heild má lesa hér.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning