Hagvöxtur landshluta 2004-2009
Þegar horft er á allt tímabilið frá 2004 – 2009 er svo að sjá sem hagvöxtur hafi verið nokkru meiri á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Framleiðsla óx í öllum landshlutum á þessu tímabili. Mestur vöxtur mældist á Suðurnesjum og
á Austurlandi, en minnstur á Norðurlandi og á Vestfjörðum.
Framleiðsla á mann jókst minnst á Norðurlandi og Suðurlandi á árunum 2004 – 2009, en langmest á Austurlandi. Annast staðar er vöxturinn svipaður, á bilinu 20 – 30%. Sjávarútvegur dregst saman á Norðurlandi og Austfjörðum en stóreykst á Suðurnesjum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Árnason sigurdur@byggdastofnun.is eða í síma 455 5400
Skýrsluna í heild má lesa hér.









