Mat á framkvæmd vaxtarsamninga
miðvikudagur 23.júní 2010 - Lestrar 122
Í upphafi þessa árs undirritaði iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, fimm nýja vaxtarsamninga. Fjórir
þeirra koma í stað eldri samninga en einn er nýr. Þeir sem koma í stað eldri samninga eru; Vaxtarsamningur Vesturlands, Vaxtarsamningur Vestfjarða,
Vaxtarsamningur Austurlands og Vaxtarsamningur Suðurlands. Nýi samningurinn er Vaxtarsamningur Suðurnesja. Samningarnir gilda frá undirritun til ársloka 2013.
Markmið allra samninganna er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á viðkomandi svæðum. Framlög til samninganna á
árinu 2010 eru á bilinu frá 20 milljónum til 35 milljóna.
Iðnaðarráðuneytið hefur falið Byggðastofnun að meta hvort samningarnir uppfylli skilyrði til að þeir fái greidd framlög samkvæmt samningi.
Verklagsreglur við mat á gögnum má nálgast hér.









