NORA-styrkir, næsti frestur 8. mars
Norræna
Atlantssamstarfið, NORA, úthlutar verkefnastyrkjum tvisvar á ári. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2010.NORA veitir að jafnaði styrki í eftirtöldum málaflokkum:
- Auðlindir hafsins
- Ferðaþjónusta
- Upplýsingatækni
- Samgöngur og flutninga
- Annað svæðasamstarf
Að þessu sinni verður einnig lögð áhersla á landbúnað. Umsóknarfrestur er 8. mars og þarf að skila umsóknum á skrifstofu NORA, Bryggjubakka 12, postboks 259, FO-110 Tórshavn, Föroyar. Umsóknum skal skila rafrænt, en einnig má skila þeim undirrituðum í pósti ásamt fylgiskjölum. Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu NORA.
Upplýsingar um starfsemi NORA og verkefnastyrki má finna hér á síðunni. Sjá einnig heimasíðu NORA, http://www.nora.fo/
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir hjá Byggðastofnun, sem jafnframt er tengiliður NORA. Sími 455 5400 og netfang: sigga@byggdastofnun.is









