Nýr umsóknarfrestur í Norðurslóðaáætlun
þriðjudagur 08.desember 2009 - Lestrar 73
Nú hefur verið
auglýstur fimmti umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar með lokadagsetningu 24. mars 2009. Að þessu sinni er lögð sérstök
áhersla á verkefni er falla að markmiðum um Nýsköpun og samkeppnishæfni og Sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og samfélags.
Í ljósi þeirra efnahagslegu þrenginga sem þátttökuönd áætlunarinnar standa nú frammi fyrir er lögð sérstök áhersla á verkefni sem eru líkleg til að skapa ný störf til að takast á við vaxandi atvinnuleysi og þróa skapandi lausnir. Ákveðin tækifæri til sóknar felast í kreppunni og lögð er áhersla á að þau séu nýtt. Með aukinni samvinnu hinna ýmsu greina má ná árangri og mætti nefna samstarf skapandi greina við hefðbundið atvinnulíf í því sambandi.
Þrátt fyrir ofangreindar megináherslur um verkefni þá hafa verið greind eftirfarandi verkefnasvið sem enn vantar verkefni.
- Þekkingaryfirfærsla og samstarfsnet rannsóknastofnana og fyrirtækja með að markmiði að auka getu til nýsköpunar, ná fram skilvirkara nýsköpunarferli og bætta samkeppnishæfni.
- Samstarfsverkefni þéttbýlis og dreifbýlis um þróun þjónustu.
Opnað verður fyrir umsóknir í 6. umsóknarfrest 3. september 2010 og verða áherslur hans kynntar í júlí 2010.
Að öðru leyti vísast til upplýsinga á vef Norðurslóðaáætlunar ogByggðastofnunar
Nálgast má auglýsingu um fimmta umsóknarfrest hér.











