Ráðstefna NORA um tækifæri á Norður-Atlantssvæðinu
Dagana 18.-19.
maí s.l. var haldin í Reykjavík ráðstefna á vegum NORA undir yfirskriftinni North Altantic Opportunities. Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra setti ráðstefnuna, en Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar var
ráðstefnustjóri.
Ráðstefnan var opin öllum og stóð fram til hádegis fyrri daginn. Að henni lokinni tóku við vinnufundir þar sem annars vegar var fjallað um
tækifæri í fiskeldi og hins vegar varðandi sjálfbæra orkunýtingu. Til vinnufundanna var boðið aðilum frá hinu opinbera, úr
atvinnulífi og rannsóknargeira. Þátttakendur komu frá NORA-löndunum fjórum, auk Kanada, en eitt af markmiðunum með fundunum var að efla
samstarf við Kanada. Að öðru leyti var markmiðið fyrst og fremst að koma á fót samstarfsverkefnum á svæðinu og innan þessara greina,
eða opna möguleika á slíku samstarfi.
Þátttakendur vinnufundanna voru um 50 talsins. Almenn ánægja var með útkomuna meðal þátttakenda og nokkur álitleg verkefni virðast vera í farvatninu í kjöfar fundanna. Lars Thostrup framkvæmdastjóri NORA var mjög ánægður með árangur fundanna, en telur jafnframt nauðsynlegt að vel takist til með fjármögnun slíkra samstarfsverkefna og til þess að svo megi vera þurfi norræna sjóðakerfið að vinna vel saman. Á ráðstefnunni voru bæði norrænir og kanadískir stuðningsmöguleikar kynntir og fulltrúar þeirra sjóða lýstu yfir vilja að koma að samstarfsverkefnum með NORA-löndunum. Það voru auk NORA, m.a. Norræni nýsköpunarsjóðurinn.









