Samanburður fasteignamats á nokkrum þéttbýlisstöðum
Byggðastofnun hefur
fengið Fasteignaskrá Íslands til að reikna út fasteignamat á sömu fasteigninni í 25 þéttbýlisstöðum vítt um
landið. Jafnframt var reiknað út fasteignamat viðkomandi húss og lóðar miðað við meðaltals fasteignamat á
höfuðborgarsvæðinu.
Matið miðast við verðlag í febrúar 2009 og gildir frá 31. desember 2009.
Nú er eldra fasteignamat ekki lengur framreiknað frá ári til árs heldur er hver fasteign endurmetin árlega í ljósi kaupsamninga sem gerðir hafa verið um sambærilegar eignir. Samanburður við fyrri ár er því erfiður.
Fasteignamat húss og lóðar á höfuðborgarsvæðinu, miðað við meðaltalið, er 34,2 milljónir.
Af þeim þéttbýlisstöðum sem skoðaðir voru þá er matið hæst í Keflavík 25,8 milljónir og á Akureyri 25,6 milljónir. Lægst er matið á Patreksfirði 7,9 milljónir, Bolungarvík 8,8 milljónir og á Siglufirði 9,4 milljónir.
Um frekari upplýsingar vísast til ritsins „Fasteignamat 2010“ sem Fasteignaskrá Íslands gaf út í júlí 2009.
Sjá má súlurit með því að smella hér og töflu yfir
þá staði sem skoðaðir voru með því að smella hér.










