Skýrsla um framtíðarfyrirkomulag á lánastarfsemi Byggðastofnunar
miðvikudagur 06.júlí 2011 - Lestrar 44
Nefnd sem
falið var að gera tillögur um framtíðarfyrirkomulag á lánastarfsemi Byggðastofnunar telur að full þörf sé á starfsemi
stofnunarinnar. Í skýrslunni eru m.a. settar fram tillögur um stefnumótun stjórnar og eigenda Byggðastofnunar, tillögur um heildarendurskoðun laga og
reglugerðar um stofnunina og tillögur varðandi efnahagsreikning stofnunarinnar.
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra skipaði nefndina í febrúar sl. og í henni áttu sæti þau Lárus
Á. Hannesson, Valgerður Bjarnadóttir, Finnbogi Vikar, Herdís Á. Sæmundardóttir, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Sturla Böðvarsson og
Gunnar Svavarsson, formaður.
Heimildir









