Þéttleiki byggðar
Holland er eitt þéttbýlasta land Evrópu með rúmlega 1000 íbúa á hvern ferkílómetra en Svíþjóð og
Finnland eru dreifbýlustu lönd Evrópusambandsins með 22 íbúa á hvern ferkílómetra. Ísland er 103.000 ferkílómetrar og
þar búa um 319.000 íbúar árið 2009, eða um 3 íbúar á hvern ferkílómetra. Viðmið OECD skilgreinir dreifbýli
þar sem íbúar á hvern ferkílómetra eru færri en 150. Samkvæmt þessu er Ísland í heild dreifbýlt en í
Reykjavík búa þó um 430 íbúar á hvern ferkílómetra og á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur búa
um 65 íbúar á hvern ferkílómetra.
Sé miðað við landstærð undir 200 metrum hækkar auðvitað íbúafjöldi á hvern ferkílómetra en samt telst landið
dreifbýlt. Á kortinu sem fylgir má sjá hversu margir búa á hvern kílómetra undir 200 metra hæð eftir sveitarfélögum
árið 2009. Blái liturinn sem sýnir færri en 50 íbúa á hvern ferkílómetra er ríkjandi en frávik eru á
höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Akranesi og Akureyri og í Stykkishólmi, Árborg Hveragerði og Vestmannaeyjum.
Kortin má nálgast hér.
Nánar um þéttleika byggðar.











