Uppbygging hafin á Flateyri
Helstu kröfuhafar
í þrotabú Eyrarodda á Flateyri hittust í gær, á Flateyri, til þess að staðfesta samninga sem tekist hafa um sölu á meginhluta
eigna búsins til félagsins Arctic Fish ehf. Í yfirlýsingu sem undirrituð var af þessu tilefni segir meðal annars:
„Eru kaupin gerð með velvilja sveitarfélagsins og til hagsbóta fyrir veðhafa. Áform Arctic Fish ehf. eru að hefja vinnslu á Flateyri svo
fljótt sem auðið er og stefnir félagið að því að byggja upp starfsemi með vinnslu á eldisfiski og öðrum sjávarafla. Eru
undirritaðir fullvissir um að fyrirætlanir kaupanda muni efla atvinnulíf á Flateyri til framtíðar."
Byggðastofnun er stærsti einstaki kröfuhafinn í þrotabúið og hefur frá upphafi skipta beitt sér fyrir því að til staðarins fengjust traustir aðilar sem myndu standa að öflugri uppbyggingu vinnslu á Flateyri. Það er okkar trú að það hafi tekist og hefur stofnunin nú þegar, í samvinnu við kaupanda, hafið nauðsynlegar viðgerðir og viðhald á eignum á Flateyri, framkvæmt viðgerðir á frystiklefa og endurbyggt þak á vélasal sem skemmdist í aftakaveðri síðasta vetur.
Byggðastofnun óskar nýjum eigendum og Flateyringum öllum velfarnaðar.









