Ársfundur Byggðastofnunar er haldinn fyrri hluta árs. Stjórn stofnunarinnar ákveður fundardag, fundarstað og dagskrá. Samkvæmt reglugerð fyrir Byggðastofnun skal á fundinum fjallað um horfur og aðgerðir í byggðamálum og starfsemi Byggðastofnunar.
Ársfund sitja iðnaðarráðherra, stjórn og stjórnendur Byggðastofnunar og gestir. Til fundarins er boðið fulltrúum atvinnuþróunarfélaga, sveitarfélaga, alþingismönnum, fulltrúum annarra stofnana og aðila sem vinna að atvinnu- og byggðaþróunarmálum, sem og fulltrúum fjölmiðla og annarra aðila sem um byggðamál fjalla.
Ársfundir
Ársskýrslur og ársreikningar
Tilkynningar Byggðastofnunar til OMX Norrænu kauphallarinnar á Íslandi.
Eldri uppgjör og ársskýrslur má nálgast hjá Byggðastofnun. Hafið samband með því að smella hér











