Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

ESPON

ESPON (European Observation Network on Territorial Development and Cohesion eða Evrópska netverkið fyrir rannsóknir á svæða- eða byggðaþróun og aðlögun) er ein af svæða- eða byggðatengdu aðgerðaáætlunum Evrópusambandsins, fjármögnuð að 75% hluta af Byggðaþróunarsjóði ESB undir 3. áherslusviði hans, Evrópskt svæðasamstarf, og öllum 27 aðildarlöndum og 4 samstarfslöndum, Sviss, Noregi, Liechtenstein og Íslandi. Ísland varð aðili að ESPON á öðru starfstímabili áætlunarinnar, frá 2007-2013. Skrifstofa áætlunarinnar í Luxemburg er ekki stór en styrkir hennar hafa leitt af sér umfangsmikið samstarfsnet um byggðarannsóknir háskóla og rannsóknastofnana um alla Evrópu.

Einkenni rannsóknaverkefna á vegum ESPON er samanburður milli svæða, víðtæk framsetning upplýsinga á kortum og síðan hinar miklu kröfur um fagleg vinnubrögð. Rannsóknastyrkir hafa aðallega verið veittir fjölþjóðlegum rannsóknateymum háskóla og annarra rannsóknastofnana á sviði byggðaþróunar. ESPON-rannsóknir hafa þegar haft áhrif á stefnumótun ESB í byggðamálum og svo mun áreiðanlega verða í næstu framtíð.

Á tímabilinu 2007-2013 verða fimm megináherslur fyrir aðgerðir og rannsóknir sem taldar eru upp hér á eftir og hlutfall hverrar áherslu af útgjöldum ESPON sýnt innan sviga en ESPON hefur € 47 milljónir til ráðstöfunar á starfstímabilinu 2007-2013:

  1. Hagnýtar rannsóknir á byggðaþróun, samkeppnishæfni og aðlögun (42,4%).
  2. Verkefnamiðaðar rannsóknir á grundvelli óska notenda (14,4%).
  3. Vísindalegur grundvöllur ESPON,vísindavettvangar og –áhöld (13,5%).
  4. Fjármögnun, eignarhald og þátttaka (12,2%).
  5. Tæknileg aðstoð, greiningarstuðningur og samskipti (17,5%).

Auglýst er eftir styrkumsóknum undir þremur fyrstu áherslunum en hinar eru starfsáherslur. Undir 2. áherslunni eru átta skilgreind rannsóknasvið fyrir styrkhæf verkefni.

Starfsmenn Byggðastofnunar hafa setið fundi stjórnarnefndar ESPON í umboði iðnaðarráðuneytisins og í mars 2009 gerði stofnunin samning við Háskólann á Akureyri um að hann gegni hlutverki starfstengiliðs ESPON á Íslandi, tengi íslenska og evrópska háskóla og rannsóknastofnanir á sviði byggðarannsókna og þessar stofnanir og ESPON.

Mikilvægi ESPON-starfsins felst í

  • að fylgjast með rannsókna- og stefnumótunarvinnu á sviði byggðamála í Evrópusambandinu,
  • efldri þátttöku íslenskra háskóla í hinum fjölþjóðlegu byggðarannsóknum sem styrktar eru,
  • áhrifum af því starfi á umræðu og stefnumótun í byggðamálum á Íslandi.

Stutt yfirlit yfir starf ESPON 2013 áætlunarinnar í maí 2011 má finna hér og glögg grein fyrir starfi ESPON og tilgangi er að finna á heimasíðu ESPON.

Heimasíða ESPON er espon.eu  Þar er m.a. hægt að gerast áskrifandi að fréttabréfi ESPON.

Heimasíða ESPON

Um ESPON verkefni um fjölbreytileika svæða (Territorial Diversity)

Síðast uppfært 26.05.2011

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning