Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Fjármögnun verkefna

Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum útlánaáætlun fyrir árið 2011.  Það er kunnara en frá þurfi að segja að aðstæður á fjármagnsmarkaði eru erfiðari nú en áður hefur þekkst.  Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að skerpa enn frekar á áherslum í útlánastarfseminni með það að megin markmiði að útlánageta stofnunarinnar nýtist sem allra best.

Í samræmi við þetta leggur Byggðastofnun einkum áherslu á eftirfarandi viðmið á árinu 2011:

  1. Vegin meðaláhætta allra útlána ársins 2011 verði ekki hærri en 10%.
  2. Miðað skal við að áhætta vegna eins eða fleiri tengdra aðila fari ekki yfir 200 mkr.
  3. Ekki verður lánað til endurfjármögnunar á langtímalánum viðskiptabanka og sparisjóða nema því aðeins að um sé að ræða lið í fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækis til langs tíma.
  4. Sérstök áhersla verði lögð á gjaldeyrisskapandi eða gjaldeyrissparandi verkefni.
  5. Sköpun eða varðveislu varanlegra starfa.
  6. Áfram þarf að leggja áherslu á eiginfjárframlag til nýrra verkefna til að auka möguleika á að verkefnið takist við þær aðstæður sem nú eru á fjármagnsmarkaði.

Þá liggur fyrir, vegna aðstæðna á fjármagnsmörkuðum, að lánveitingar á árinu 2011 verða einungis í íslenskum krónum.

Fjármögnun verkefna er þríþætt; lán, styrkir og hlutafé. Hvorki eru veittir styrkir né hlutafé á árinu 2011.

Úrræði fyrir fyrirtæki

Umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar má nálgast hér.

Reglur um skuld- og skilmálabreytingar

Vextir

1. febrúar 2011 gengu í gildi breytingar á vöxtum á lánum Byggðastofnunar.  Frá og með 1. febrúar 2011 eru verðtryggðir vextir 6,9% en vaxtaálag á erlendum lánum 4,5%.

Verðskrá

Frá og með 1. maí 2007 tók í gildi ný gjaldskrá.

 Lántökugjald  1,8%
 Skilmálabreyting á skuldabréfi í skilum  kr. 5.000 fyrir hvert lán
 Skilmálabreyting á skuldabréfi í vanskilum  1,8% af vanskilum lágmark kr. 5.000 fyrir hvert lán
 Myntbreyting á skuldabréfi  0,2% lágmark kr. 20.000
 Skuldskeyting  kr. 5.000 fyrir hvert lán
 Veðleyfi  kr. 5.000 fyrir hvert lán
 Veðbandslausn  kr. 5.000 fyrir hvert lán
 Ný veðsetning  kr. 5.000 fyrir hvert lán
 Leyfi fyrir kvótaflutning  kr. 5.000 fyrir hvert lán
 Áritun á skilyrt veðleyfi, samþykki síðari veðhafa  kr. 1.000 fyrir hvert lán
 Seðilgjald  kr. 190
 Ítrekun  kr. 2.000
 Lokaaðvörun  kr. 3.000
 Ábyrgðaþóknun  0,5-1,5%
 Uppgreiðslugjald  1,0%
 Þinglýsingargjald  kr. 2.000
 Veðbókarvottorð úr tölvu  kr. 1.000
 Greiðsluáskorun  kr. 15.125+vsk
 Birtingakostnaður  kr. 1.840

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning