Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Forstjórar 21. aldarinnar verða listmenntaðir !

Því hefur verið haldið fram að eftisóttustu forstjórar 21. aldarinnar verði listamenn eða það fólk sem numið hefur skapandi hugsun. Fyrri hluta síðustu aldar voru forstjórar tækni- og verkfræðimenntaðir, en seinni hluta aldarinnar var það lögfræðimenntunin sem var mikilvægust fyrir forstjórann. Á þeim tíma var mest þörfin fyrir þá þekkingu en nú snýst forysta í fyrirtækjarekstri um að vera fljótur að skynja breytingar og verða fyrstur á markað með nýjungarnar og þessi kenning segir að til þess séu listmenn best fallnir.

Ekki ætla ég að fullyrða neitt um þetta en á bráðum níu ára starfsferli mínum sem menningarfulltrúi Austurlands hef ég löngu lært að ungt listafólk hefur mörgu að miðla. Ég tel að stjórnmála- og framkvæmdamenn landsins ættu að hlusta á og taka á móti þeim nýjungum sem þetta unga fólk hefur fram að færa.

Sem dæmi um þetta sat ég heima í stofu með ungri leikkonu Halldóru Malín Pétursdóttur fyrir nokkrum árum. Við hlustuðum saman á forsætisráðherra Norðurlandanna tala um mikilvægi norræns samstarfs. Þeir lögðu mikið upp úr nýrri hugsun, þess hvað heimsvæðingin og ,,glóbalisering" væri mikilvæg í norrænu samstarfi til þess að unga fólkið vildi vera með. Þá leit Halldóra hissa á mig og sagði; ,,skrítið, ég hélt að við værum löngu búin með þetta, glóbaliseringin væri löngu sjálfsögð og kannski úrelt að vissu leyti. Við værum einmitt að fara í öfuga átt eða meira heim á jaðarinn og hugsa um það smáa, okkur sjálf og nærsamfélagið". Þarna upplifði ég eins og svo oft áður að það sem forsvarsmenn þjóða telja nýjungar sé nánast úrelt að mati ungra listamanna.

Í mars á þessu ári hlutaði ég á listamanninn Körnu eða Kristínu Örnu Sigurðardóttur tala í menningarmiðstöðinni Sláturhúsinu á Egilsstöðum um þægindakassann sem við mannfólkið almennt komum okkur upp, til þess að öðlast öryggi og láta okkur líða vel. Karna taldi mikilvægt að brjóta þennan kassa og það væri enginn líklegri til að gera það í dag en listamaðurinn. ,,Listin hefði ekki tilhneigingu til að vera bundin í kössum. Mikilvægt væri að þróa gagnrýna, sjálfstæða hugsun og það væri það sem listin kenndi okkur.” Nú á tímum höfum við svo mikinn tíma til að hugsa, sagði Karna, þess vegna er tími til að þróa með sér gagnrýna hugsun og takast á við ýmsar nýjungar svo sem sjálfbæra hönnun og fleira sem hún taldi okkur mikilvægt. http://bureau.is/

Umtalsverðar breytingar hafa orðið hér á landi í þessa átt á síðustu tveim árum, og við heyrum af því að opinberir aðilar og einstaklingar sjái tækifæri í að tengja saman ólíka heima fólks. Til hafa orðið stofnanir eins og Hugmyndahús Háskólanna sem er samvinna Listaháskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur, Hugmyndaráðuneytið, Fablab smiðjur á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar, Topphúsið í Reykjavík, Þorpið á Austurlandi og margt fleira. Allt miðar þetta að því að koma okkur upp úr þægindakassa Körnu og hefur þegar skilað nokkrum árangri.

Í sumar voru starfandi á Austurlandi, á vegum Þorpsins, sem er tilraunaverkefni Menningarrráðs Austurlands, Þróunarfélags Austurlands og Þekkingarnets Austurlands, fjórir ungir iðnhönnuðir. http://torpid.is/ (vefurinn er ekki full unninn) Þeir voru allir í mastersnámi í hugmyndafræðilegri hönnun, nám sem ég vissi ekki að væri til. Þessir ungu menn komu frá fjórum löndum og þar af einn uppalinn á Austurlandi. Að námi loknu verður verksvið þeirra allt frá því að vinna að ímyndarsköpun fyrir fyrir borg eða sveitarfélag til þess að vinna hugmynd að hlut til sölu í verslun.Eru þetta kannski nýju forstjórarnir sem talað er um? http://theicelandproject.tumblr.com/

Hvernig nýtum við  sem búum á Íslandi og ekki síst við sem búum úti á landi, okkur best þetta unga fólk með nýja sýn og aðrar áherslur en við sjálf. Það gerum við meðal annars með því að hlusta á og taka vel á móti því unga fólki sem til okkar kemur og vill miðla af þekkingu sinni. Sérstaklega á þetta við okkur sem vinnum í svokölluðu stoðkerfi. Við eigum ekki eingöngu að taka á móti þeim og hlusta heldur einnig leita þetta fólk uppi og leiða það saman við athafnamennina okkar sem nú verða að finna sé annað að gera en byggja vegi eða hús og hlynna þannig að nýsköpun. Búa til nýja vöru, þjónustu, upplifun eða hvað annað sem ég hef ekki hugmyndaflug til en einmitt þetta unga fólk hefur. Ungt listmenntað fólk með skapandi hugsun er sá hópur hvers byggðarlags sem nú er mikilvægt að hlúa að. Fjöldinn allur af þessu fólki býr erlendis og vill koma heim ef það fær tækifæri til að koma hugmyndum sínum og verkefnum á framfæri. Sendum ekki unga vel menntaða fólkið okkar sem hér vill búa til annara landa til að vinna að nýsköpun, svo sem  sjálfbærri hönnun heldur tökum á móti þeim og sköpum þeim þann vettvang sem þarf.

Pössum að horfa ekki lengi án þess að sjá. Það gerist ekki neitt nýtt nema við gerum eitthvað og þorum.

Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi á Austurlandi.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning