Til sölu Hólsgata 3, Neskaupsstað, Fjarðarbyggð
Byggðastofnun auglýsir eftir tilboðum í Hólsgötu 3, fastanúmer hjá FMR 216-9223. Um er að ræða 165,6m² iðnaðarhúsnæði byggt árið 1960.
Upplýsingar um fasteigna- og brunabótamat auk loftmyndar má nálgast á heimasíðu Fasteignaskrár Íslands með því að smella hér.
Tilboð skulu send Byggðastofnun, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða fax 455-5499.
Byggðastofnun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Frekari upplýsingar veitir Hjalti Árnason hdl. hjá Byggðastofnun í síma 455-5400 eða hjalti@byggdastofnun.is









