Til sölu Laxabraut 7, Þorlákshöfn, Ölfusi
Þrjú stálgrindahús sem eru sambyggð að hluta auk 201,8 m 2 frístandandi húss. Fyrsta húsið er 1.278 m 2 , annað er 1.072,8 m 2 og þriðja er 310,8 m 2 .
Fyrsta húsið er fullbúið með steyptu gólfi og raflögnum. Vegghæð er 5,7m.
Annað húsið risið en án steyptrar plötu og lagna. Vegghæð getur verið allt að 6,2 m.
Þriðja húsið er með steyptri gólfplötu. Opið er á milli húsa númer 2 og 3 en gólfið í
húsi 3 er um 50 cm hærra en í 2. Vegghæð er 5,7m.
Fjórða húsið er 201,8 m 2 frístandandi frá hinum húsunum og hentar vel fyrir starfsmannaaðstöðu ofl.
Sjá myndir og frekari upplýsingar hér
Til að fá frekari upplýsingar um eignina vinsamlega hafið samband við Lögmenn Suðurlandi s. 480-2900
Byggðastofnun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.










