Til sölu Hótelið að Minni-Mástungu ásamt 4 sumarhúsum.
Byggðastofnun auglýsir eftir tilboðum í Hótelinu að Minni-Mástungu, hótelið og bústaðir eru byggðir frá árinu 2003- 2004.
Hótelið og sumarbústaðirnir í Minni - Mástunga er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, hótelið stendur í halla upp frá Kálfa með útsýni allt til Vestmannaeyja í suðri, Eyjafjalla og Tindfjallajökla og Þríhyrnings í suð- austri. Þjóðvegur liggur um landareignina og meðfram honum þriggja fasa raflögn í jörðu. Hitaveita er á jörðinni, í hótelinu eru 12 2ja manna herbergja hótel með góðu eldhúsi, sólstofu, glæsilegum bar, veitingasal sem tekur 80 manns í sæti og fundarsalur sem tekur 40 manns í sæti, tvö snyrtileg og vel búin sumarhús 2 x 40m2 og 60 m2 og 47 m2. Bærinn er í 7 km fjarlægð frá Árnesi og helmingur vegarins er með bundið slitlag. Reykjavík er í tæplega 100 km fjarlægð frá Minni - Mástungu. Mikil veðursæld er á sumrin enda stendur bærinn á góðum stað. Umhverfið er mjög kyrrlátt og fjölbreytt fuglalíf í umhverfinu.
Upplýsingar um fasteigna- og brunabótamat má sjá á heimasíðu Fasteignaskrár Íslands með því að smella hér og hér.
Vinsamlega hafið samband við Lögmenn Suðurlandi s: 480-2900









