Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Reglur um störf stjórnar Byggðastofnunar

1. gr.

Meginverkefni stjórnar Byggðastofnunar eru skipulag, stefnumótun, fjárhagur, efnahagur og rekstrarmálefni stofnunarinnar og ársreikningur, áætlanagerð, árangursmat, reglusetning og eftirlit með starfseminni, rammaákvarðanir og ákvarðanir um forsendur, mælistikur og viðmiðanir, svo og samskipti við stjórnvöld og aðra.

2. gr.

Stjórnarmenn Byggðastofnunar eru bundnir trúnaði og þagnarskyldu um allt það er þeir verða áskynja um í stjórnarstarfi og leynt skal fara að lögum eða samkvæmt eðli máls. Þagnarskylda helst eftir að umboði stjórnarmanns lýkur.

3. gr.

Um sérstakt hæfi einstakra stjórnarmanna til þátttöku í ákvörðunum um einstök mál gilda reglur VII kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.  Stjórnarmaður skal ekki taka þátt í meðferð máls er varðar viðskipti hans sjálfs, fyrirtækis sem hann á virkan eignarhlut í, situr í stjórn, er í forsvari fyrir, er starfsmaður við eða á verulegra hagsmuna að gæta í eða telst að öðru leyti innherji í, svo og varðandi samkeppnisaðila slíkra fyrirtækja. Sama gildir um þátttöku í meðferð máls sem tengist aðila sem er venslaður stjórnarmanni persónulega eða fjárhagslega.

Sé stjórnarmaður vanhæfur skal hann upplýsa stjórn um það, og ber honum að víkja af fundi við umfjöllun um málið. Sé stjórnarmaður vanhæfur í máli skal hann ekki hafa aðgang að gögnum er varða afgreiðslu þess. Telji stjórnarmaður eða forstjóri að stjórnarmaður sé vanhæfur í máli geta þeir krafist þess að hann víki sæti áður en efni málsins er kynnt.  Bóka skal í fundargerð að stjórnarmaður hafi vikið sæti og ekki fengið aðgang að gögnum þessu til staðfestingar.

Við upphaf stjórnarsetu ber stjórnarmanni að leggja fram yfirlit yfir þau fyrirtæki sem hann telur að svo sé ástatt um að hann geti ekki tekið þátt í afgreiðslu á málefnum þeirra. Hann skal einnig tilkynna ef breytingar verða á högum hans að þessu leyti.

4. gr.

Stjórnarmanni er óheimilt að óska eftir upplýsingum um einstaka viðskiptaerindi og einstaka viðskiptavini stofnunarinnar hjá starfsmönnum Byggðastofnunar.  Fyrirspurnir um þessi atriði skal bera upp í stjórn og svör við einstökum fyrirspurnum skulu kynnt stjórnarmönnum öllum og bókuð í fundargerð.

5. gr.

Í endurskoðunarskýrslu ytri endurskoðanda með ársreikningi skal fylgja skýrsla hans um úttekt á fyrirgreiðslu til venslaðra aðila þar sem jafnframt eru borin saman sambærileg viðskipti annarra viðskiptavina.  Með fyrirgreiðslu er átt við útlánastarfsemi, styrkveitingar, hlutafjárframlög, svo og fjárhagslega fyrirgreiðslu af hvaða tegund sem er.  Með vensluðum aðilum er átt við stjórnarmenn og varamenn þeirra, forstjóra, forstöðumenn sviða, aðalbókara, endurskoðanda og innri endurskoðanda og regluvörð, ásamt nánum fjölskyldumeðlimum, þ.e. maka og ófjárráða börnum á heimili þessara aðila.  Hliðstæðir aðilar í dótturfélögum stofnunarinnar og tengdum félögum falla einnig undir að vera venslaðir aðilar.  Þegar stjórnarmaður tekur sæti í stjórn skal hann gera regluverði grein fyrir þeim aðilum sem hann er venslaður sbr. skilgreiningu  hér að ofan.  Einnig skal stjórnarmaður tilkynna regluverði um allar breytingar sem verða á lista yfir þá aðila sem honum eru venslaðir.

6. gr.

Aðalmenn og varamenn í stjórn Byggðastofnunar, eða fyrirtæki sem þeir eiga eða eru í forsvari fyrir, skulu ekki sækja um lán og/eða styrki hjá stofnuninni.

Öll önnur viðskiptaerindi stjórnarmanna og/eða varamanna, og fyrirtækja sem þeir kunna að eiga eða vera í forsvari fyrir skulu lögð fyrir stjórn Byggðastofnunar.

7. gr.

Sérhverjum stjórnarmanni ber að gera við vart ef hann telur ástæðu til að ugga um lögskilgreinda eiginfjárstöðu Byggðastofnunar og að taka málið upp á stjórnarfundi og krefjast viðeigandi aðgerða.

8. gr.

Forstjóri hefur almennt umboð til að stýra og hafa umsjón með allri starfsemi og málefnum Byggðastofnunar enda ber hann rekstrarlega stjórnunarábyrgð í stofnuninni.

Forstjóri kemur fram fyrir hönd stofnunarinnar og stjórnar út á við. Stjórnarformaður kemur einnig fram fyrir hönd stjórnar stofnunarinnar.

Forstjóri hefur meðal annars almennt umboð til ákvarðana sem ekki mega bíða. Ef við á skal hann hafa samráð við stjórnarformann um slík efni og tilkynna stjórnarmönnum svo fljótt sem verða má.

9. gr.

Forstjóri hefur almennt umboð til að stýra og hafa umsjón með allri lána-, fjármála- og eignaumsýslu Byggðastofnunar.

Forstjóri skal setja verklagsreglur um starfsemi fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar og leggja fyrir stjórn til staðfestingar. Í þeim skulu m.a. vera ákvæði um sérstaka lánanefnd undir forystu forstjóra, svo og um ákvarðanir stjórnar um styrkveitingar og samfjármögnun á grundvelli forvinnslu lánanefndar.

Forstjóri skal setja verklagsreglur um umsjón fullnustueigna og önnur verkefni lögfræðisviðs og leggja fyrir stjórn til staðfestingar.

Stjórn skal því aðeins fjalla um einstök mál eða erindi fyrirtækjasviðs eða lögfræðisviðs að um sé að ræða nýmæli, vafamál eða stefnumarkandi mál, að umfang máls sé verulegt miðað við fjárhag eða hagsmuni Byggðastofnunar eða að umfjöllun sé liður í upplýsinga- eða eftirlitsstarfi stjórnarmanns.

10. gr.

Forstjóri tilnefnir fulltrúa Byggðastofnunar í stjórnum og nefndum. Skulu tilnefningar lagðar fyrir stjórn til upplýsinga, en samþykki stjórnin ekki skal forstjóri gera aðra tilnefningu í staðinn. Telji stjórn Byggðastofnunar rétt að stjórnarmaður taki sæti í stjórn dóttur- eða hlutdeildarfélags skal við slíka ákvörðun fjalla ítarlega um áhrif stjórnarsetunnar á eftirlitshlutverk viðkomandi stjórnarmanns og um nauðsyn þess að hann taki sæti í þeirri stjórn.

11. gr.

Þar sem Byggðastofnun hefur gefið út skuldabréf sem eru skráð í OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi eru stjórnarmenn og varamenn í stjórn, ásamt forstjóra og lykilstarfsmönnum tilkynntir til Fjármálaeftirlitsins sem fruminnherjar.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning