Byggðamál eru víðtæk og samstarf er lykilorð. Byggðastofnun hefur leitað eftir samstarfi og beitt sér fyrir samstarfi annarra,
formlegu og óformlegu, s.s. ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, mennta- og rannsóknarstofnana og félaga. Samstarfið hefur verið með ýmsum
hætti, bein samstarfsverkefni, gagnkvæm upplýsinga- og ráðgjöf, fjárstuðningur og aðild að áætlanagerð, ráðstefnum og
fundum.
Byggðastofnun starfar náið með átta atvinnuþróunarfélögum á landinu á grundvelli samninga við þau og hefur gert samninga við stofnanir í stoðkerfi atvinnuveganna um samstarf við Byggðastofnun og atvinnuþróunarfélögin. Tilgangur þessara samninga er aukin skilvirkni stofnana á landsbyggðinni og bætt skilyrði atvinnuþróunarfélaga til að sinna verkefnum á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, nýsköpunar og ráðgjafar.
Flest Vesturlanda leggja áherslu á byggðaþróun og verja til hennar miklum fjármunum. Þessar fjárveitingar þurfa að vera í samræmi við reglur og samninga sem gilda í samstarfi þessara landa og samstarf á sviði byggðamála er alþjóðlegt, um rannsóknir, reglur og samninga um byggðaþróun.