Til sölu Sandhorn 152132, Hrísey
Byggðastofnun auglýsir eftir tilboðum í Sandhorn, 152132, Hrísey, fastanúmer 215-6396, stærð 832,7 m2. Húsnæðið er byggt frá árunum 1970- 1978 og er skráð sem fiskvinnsluhús.
Upplýsingar um fasteigna- og brunabótamat auk loftmyndar má nálgast á heimasíðu Þjóðskrá Íslands með því að smella hér.
Tilboð skulu send Byggðastofnun, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða fax 455-5499
Byggðastofnun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Frekari upplýsingar veitir Hjalti Árnason hdl. í síma 455-5400 eða hjalti@byggdastofnun.is









