Til sölu Bifreiðaverkstæði að Stórholti 6, Þórshöfn.
Byggðastofnun auglýsir eftir tilboðum í húsnæðið að Stórholti 6. Fastanúmer 216-7827. Byggingarár er 1983 og stærð 348,1 m². Húseignin hefur verið uppgerð að fullu að innan og eru einnig komnar nýjar hurðir, húsnæðið er í útleigu.
Upplýsingar um fasteigna- og brunabótamat má nálgast af heimasíðu Fasteignaskrár Íslands með því að smella hér.
Tilboð skulu send Byggðastofnun, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða fax 455-5499.
Byggðastofnun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Frekari upplýsingar veitir Hjalti Árnason hdl. í síma 455-5400 eða hjalti@byggdastofnun.is









