Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Vaxtarsamningar

Á vegum iðnaðarráðuneytisins hefur verið unnið að gerð svokallaðra vaxtarsamninga á undanförnum árum.  Byggðastofnun hefur komið að þeirri vinnu í nánu samráði við heimamenn á hverju svæði og með núgildandi byggðaáætlun hefur Byggðastofnun verið falin umsjón með framkvæmd vaxtarsamninga. Vaxtarsamningar eru framkvæmdaáætlanir (tíma-, vinnu- og kostnaðaráætlanir) um nýsköpun á tilgreindum sviðum atvinnumála fyrir ákveðið svæði. Samningarnir byggja á samkomulagi opinberra aðila og einkaaðila um leiðir til að ná settum markmiðum og eru aðferð til þess að leiða saman opinbera aðila, mennta- og rannsóknastofnanir og fyrirtæki á þeim sviðum sem samningarnir ná til.

Vaxtarsamningar sem gerðir hafa verið eru eftirfarandi:  Hægt er að komast á heiamsíðu hvers samnings með því að smella á viðkomandi logo (ekki er til heimasíða eða merki fyrir vaxtarsamning á Norðausturlandi en nálgast má upplýsingar um hann á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga)

 

         
         
         

Meginhugmynd í vaxtarsamningum er samstarf í svokölluðum klösum, þar sem leitast er við að efla samvinnu fyrirtækja og stofnana á ákveðnum sviðum sem á einhvern hátt geta unnið saman og nýtt styrkleika hvers annars, jafnvel þótt fyrirtækin séu að öðru leyti í samkeppni. Skilgreind eru meginsvið sem hver samningur tekur til.

Vaxtarsamningar hafa fylgt starfssvæðum atvinnuþróunarfélaganna.  Meginsvið eldri vaxtarsamnings fyrir Eyjafjarðarsvæðið voru matvælagreinar, ferðaþjónusta, menntun og rannsóknir og heilbrigðisþjónusta. Meginsvið vaxtarsamnings Vestfjarða eru menning og ferðaþjónusta, sjávarútvegs- og matvælagreinar og menntun og rannsóknir. Á Suðurlandi er höfuðáhersla lögð á menntun og rannsóknir, ferðaþjónustu og menningu og matvælaframleiðslu og sjávarútveg og á Austurlandi eru starfandi mennta- og rannsóknaklasi, menningar- og ferðaþjónustuklasi og sjávarútvegs- og matvælaklasi.  Á Vesturlandi er einnig mennta- og rannsóknarklasi, menningar- og ferðaþjónustuklasi, sjávarútvegs- og matvælaklasi og einnig iðnaðarklasi. Vaxtarsamningur fyrir Norðurland vestra var undirritaður í janúar 2008. Megináhersla í honum er lögð á menntun og rannsóknir annars vegar og menningu og ferðaþjónustu hins vegar. Um svipað leyti var gengið frá vaxtarsamningi Norðausturlands. Í þeim samningi eru ekki skilgreindir klasar, en lögð áhersla á að nýta styrkleika og styrkja veikar hliðar hvers svæðis um sig með áherslu á samstarf svæða. Loks var í janúar undirritaður nýr samningur fyrir Eyjafjörð með þeim breytingum frá fyrra samningi að hann er ekki einskorðaður við einstakar atvinnugreinar.

Verklag við mat á gögnum vegna vaxtarsamninga 2010-2013

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning