Útgefið efni

Hér er að finna ýmsar skýrslur, greinar og úttektir sem Byggðastofnun hefur unnið, látið vinna fyrir sig eða verið þátttakandi að í gegnum tíðina.  Þetta

Útgefið efni

Hér er að finna ýmsar skýrslur, greinar og úttektir sem Byggðastofnun hefur unnið, látið vinna fyrir sig eða verið þátttakandi að í gegnum tíðina.  Þetta er ekki tæmandi listi yfir þær útgáfur sem Byggðastofnun hefur komið að, en unnið er að því að setja inn eldra efni eftir því sem við verður komið.  Allar skýrslur sem til eru á rafrænu formi eru í pdf formi.  Hægt er að nálgast Acrobat Reader með því að smella á hnappinn neðst á síðunni.  Ef óskað er eftir skýrslum sem ekki eru á rafrænu formi hafið þá samband með því að smella hér.

Ársskýrslur og ársreikninga má nálgast hér.

Veldu ár: 201220112010, 2009, 2008, 2007, 2006, 2005, 2004, 2003, 2002, 2001, 2000, 1999, 1998,
1997,
 1994, 1993, 1992,  1991, 1990, 1989, 1988, 1987, 1986

2013

Samfélagsáhrif lánveitinga Byggðastofnunar (Byggðastofnun, janúar 2013)
- Samantekt um samfélagslegan ávinning af lánastarfsemi Byggðastofnunar eftir landssvæðum, tegundum byggðarlaga og atvinnugreinum

Einstakir kaflar

 

2012

Sóknaráætlanir landshluta - Stöðugreining 2012
- stöðugreining á nokkrum mikilvægum samfélagsþáttum fyrir alla landshluta unnið að beiðni stýrinets Stjórnarráðsins.


 

Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun (Byggðastofnun, júní 2012)
-til skoðunar eru svæði þar sem íbúum fækkaði um 15% eða meira á 15 ára tímabili, árin 1994-2009.

Einstakir kaflar

2011

Hagvöxtur landshluta 2004-2009 (Byggðastofnun og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, október 2011)
-skýrsla um hagvöxt á árunum 2004-2009 í öllum landshlutum.  Skýrslan er unnin af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir Byggðastofnun.

Skýrsla um framtíðarfyrirkomulag á lánastarfsemi Byggðastofnunar (Iðnaðarráðuneytið, júlí 2011)
-skýrsla nefndar undir formennsku Gunnars Svavarssonar.

Erlendir ríkisborgarar í íslensku samfélagi (Byggðastofnun, júní 2011)
-skýrsla unnin af Sigríði Elínu Þórðardóttur, sérfræðingi á þróunarsviði Byggðastofnunar

Starfshópur um lánastarfsemi Byggðastofnunar (Iðnaðarráðuneytið, janúar 2011)
-greinargerð starfshóps sem iðnaðarráðherra skipaði til að fjalla um lánastarfsemi Byggðastofnunar.

2010

Breytingar á íbúafjölda 2001-2010 (Byggðastofnun, desember 2010)
-greinargerð um helstu breytingar á  íbúafjölda sveitarfélaga og landssvæða tekin saman af þróunarsviði Byggðastofnunar.

Áfangaskýrsla um þekkingarsetur á Íslandi (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, ágúst 2010)
-áfangaskýrsla um þekkingarsetur á Íslandi sem starfshópður mennta- og menningarmálaráðherra skilaði.  Starfsmenn Byggðastofnunar tóku mikinn þátt í gerð skýrslunnar.

Hagvöxtur landshluta 2003-2008 (Byggðastofnun og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, maí 2010)
-skýrsla um hagvöxt á árunum 2003-2008 í öllum landshlutum.  Skýrslan er unnin af Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fyrir Byggðastofnun.

2009

Byggðaþróun - Ástand og horfur (Byggðastofnun, nóvember 2009)
- fylgirit með tillögum til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2010-2013

Styrkir til atvinnuskapandi stuðningsverkefna (Byggðastofnun, júlí 2009)
-greinargerð um 150 mkr. verkefnasjóð sem settur var á árið 2003 til stuðnings verkefnum sem væru til þess fallin að efla grunngerð nýsköpunar og atvinnuþróunar á landsbyggðinni.

2008

Hagvöxtur landshluta 2000-2006 (Byggðastofnun og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, desember 2008)
-skýrsla um hagvöxt á árunum 2000-2006 í öllum landshlutum.  Skýrslan er unnin í samvinnu við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. 

Vaxtarsamningur Eyjafjarðar (Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, desember 2008)
- mat á skilgreindum þáttum á tímabili vaxtarsamningsins (2004-2007) og starfsemi einstakra klasa.  Unnið fyrir Byggðastofnun af RHA

Byggðarlög með viðvarandi fólksfækkun (Byggðastofnun, júlí 2008)
- skýrslan tengist framkvæmd þingsályktunar frá 2006 um stefnumótandi byggðaáætlun, þar sem kveðið var á um hugað yrði sérstaklega að byggðarlögum sem glímt hafa við viðvarandi fólksfækkun.

Einstakir kaflar

Búseta og þjónusta - Athugun á áhrifum þjónustustigs á brottflutning frá völdum byggðarlögum 1996-2006 (Háskóli Íslands, janúar 2008)
- skýrsla unnin á vegum Háskóla Íslands fyrir Byggðastofnun og tengist framkvæmd þingsályktunar frá 2006 um stefnumótandi byggðaáætlun, þar sem kveðið var á um hugað yrði sérstaklega að byggðarlögum sem glímt hafa við viðvarandi fólksfækkun.

2007

Hagvöxtur landshluta 1998-2005 (Byggðastofnun og Hagfræðistofnun HÍ, ágúst 2007)
-skýrsla um hagvöxt á árunum 1998-2005 í öllum landshlutum.  Skýrslan er unnin í samvinnu við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. 

2006

Hagvöxtur landshluta 1998-2004 (Byggðastofnun og Hagfræðistofnun HÍ, desember 2006)
-skýrsla um hagvöxt á árunum 1998-2004 í öllum landshlutum.  Skýrslan er unnin í samvinnu við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. 

Lífræn framleiðsla - ónotuð tækifæri í atvinnulífi landsbyggðarinnar (júní 2006)
-úttekt á stöðu lífrænnar framleiðslu hérlendis í samanburði við grannþjóðir.

Mat á þáttöku Íslands í Norðursloóðaáætlun ESB (Stjórn Norðurslóðaáætlunar á Íslandi, mars 2006)
-matsskýrsla unnin af IMG á þátttöku Íslands í Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (Northern Periphery Programme – NPP).  Unnið fyrir stjórn NPP á Íslandi.

Skýrsla nefndar um stöðu og horfur í rækjuiðnaði á Íslandi (Nefnd á vegum sjávarútvegsráðuneytisins janúar 2006)
-nefndinni var ætlað að kanna hvort hægt væri að gera úrbætur á núverandi stöðu rækjuiðnaðarins.  Byggðastofnun átti fulltrúa í nefndinni.

Velferðarþjónusta í dreifbýli (Félagsmálaráðuneytið, janúar 2006) 
-skýrsla nefndar félagsmálaráðherra um velferðarþjónustu í dreifbýli.  Unnin af Sigríði K. Þorgrímsdóttur, þróunarsviði Byggðastofnunar.

Skýrsla Iðnaðarráðherra um framkvæmd byggðaáætlunar 2002-2005
-skýrsla iðnaðarráðherra um framvindu stefnumótandi áætlunar ríkisstjórnarinnar í byggðamálum fyrir árin 2002-2005.

2005

Íbúafjöldi og þörf á íbúðarhúsnæði á Austurlandi árið 2008, (Byggðastofnun ofl., nóvember 2005)
-rannsókn á samfélagslegum áhrifum álvers- og virkjanaframkvæmda á Austurlandi.  Rannsóknarrit nr. 1.  Skýrslan er unnin á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis, Byggðastofnunar, Byggðarannsóknarstofnunar Íslands og Þróunarfélags Austurlands. 

Konur og stoðkerfi atvinnulífsins (Byggðastofnun, nóvember 2005)
-úttekt á því hvaða árangur hefur orðið undanfarin ár af verkefnum sem hafa haft það að markmiði að örva frumkvæði kvenna í atvinnurekstri.

Eignarhald kvenna í atvinnurekstri og landbúnaði (Byggðastofnun og Iðanaðar- og viðskiptaráðuneytið, mars 2005)
-skýrsla um eignarhald kvenna í atvinnurekstri og landsbúnaði.  Unnið fyrir Byggðastofnun og Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.

Greinargerð um flutningaskotnað (Byggðastofnun 2005)
-skýrsla um flutningskostnað fyrirtækja á landsbyggðinni

2004 

Áhrif flutningskostnaðar (Byggðastofnun, 2004)
-mat á umfangi atvinnugreina sem talið er að eigi undir högg að sækja staðsetningar sinnar vegna.

Byggðarlög í sókn og vörn - formáli (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-formáli að neðangreindum SVÓT skýrslum sem unnar voru um hvern og einn landshluta af starfsmönnum Byggðastofnunar.

Byggðarlög í sókn og vörn - Vesturland (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-greining á styrk, veikleikum, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Vesturlandi.

Byggðarlög í sókn og vörn - Vestfirðir (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-greining á styrk, veikleikum, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Vestfjörðum.

Byggðarlög í sókn og vörn - Norðurland vestra (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-greining á styrk, veikleikum, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Norðurlandi vestra.

Byggðarlög í sókn og vörn - Norðurland eystra (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-greining á styrk, veikleikum, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Norðurlandi eystra.

Byggðarlög í sókn og vörn - Austurland (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-greining á styrk, veikleikum, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Austurlandi.

Byggðarlög í sókn og vörn - Suðurland (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-greining á styrk, veikleikum, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Suðurlandi.

Byggðarlög í sókn og vörn - Reykjanes (Byggðastofnun, ágúst 2004)
-greining á styrk, veikleikum, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Reykjanesi.

2003

Skipting fjár úr opinberum sjóðum milli karla og kvenna (Byggðastofnun, desember 2003)
-úttekt á því hvernig opinberir styrkir skiptast á milli karla og kvenna úr tilteknum opinberum sjóðum á árunum 1997-2003.

Rekstrar- og starfsumhverfi upplýsingamiðstöðva (Byggðastofnun og Félag ferðamálafulltrúa, september 2003)
-skýrsla um rekstrar- og starfsumhverfi upplýsingamiðstöðva.  Unnið af Byggðastofnun og Félagi ferðamálafulltrúa á Íslandi. 

2002

Stoðgreinar útgerðar og fiskvinnslu - Skipting starfa milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis (Byggðastofnun og RHA, maí 2002)
-rannsókn á því hvar á landinu störf í stoðgreinum fiskveiða og fiskvinnslu eru unnin og hins vegar hve mikið af þekkingarstörfum í sjávarútvegi sem unnin eru á höfuðborgarsvæðinu eru forsendur fyrir að vinna utan þess. Unnið fyrir Byggðastofnun af Hjördísi Sigursteinsdóttur RHA. 

2001

Noregsferð atvinnuþróunarfélaga og Byggðastofnunar 2001 (Byggðastofnun, desember 2001)
-skýrsla um ferð atvinnurþóunarfélaganna og Byggðastofnunar til Noregs í desember 2001.

Áhrif samgöngubóta á byggðaþróun (Byggðastofnun og RHA, október 2001)
-athugun á þeim samfélagslegu og efnahagslegu þáttum sem verða fyrir áhrifum af bættum samgöngum.  Unnið að beiðni stjórnar Byggðastofnunar.

Áhrif kvótasetningar aukategunda hjá krókabátum á byggð á Vestfjörðum (Byggðastofnun, október 2001) 
-mat á áhrifum vegna breytinga á veiðikerfi smábáta.

Byggðarlög í sókn og vörn - 2. Landshlutakjarnar (Byggðastofnun, október 2001)
-svæðisbunding greining á styrk, veikleika, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Íslandi.

Byggðarlög í sókn og vörn - 1. Sjávarbyggðir (Byggðastofnun, október 2001
-svæðisbundin greining á styrk, veikleika, ógnunum og tækifærum byggðarlaga á Íslandi.

Atvinnuþróun og stoðkerfi atvinnulífs á landsbyggðinni (Byggðastofnun, september 2001)  
 -greinargerð sem ætlað er að vera innlegg í mótun byggðastofnu fyrir árin 2002-2006.

Framkvæmd þingsályktunar um stefnu í byggðamálum 1999-2001 (Byggðastofnun, apríl 2001)
-greinargerð Byggðastofnunar.

Sjávarútvegur og byggðaþróun á Íslandi (Byggðastofnun, mars 2001)
-áhrif fiskveiðistjórnunarkerfisins á byggðaþróun á Íslandi.  Unnið fyrir stjórn Byggðastofnunar af Haraldi L. Haraldssyni, Nýsi hf.

Sameining sveitarfélaga - Áhrif á atvinnu- og búsetuþróun (Byggðastofnun og RHA, mars 2001)
-skýrsla sem fjallar um áhrif sameiningar sveitarfélaga á atvinnu- og íbúaþróun. Tekin eru til athugunar fjögur dæmi um sameiningu sveitarfélaga með mismunandi byggðamynstur. Samstarfsverkefni Þróunarsviðs Byggðastofnunar og Rannskónarstofnunar Háskólans á Akureyri. 

Starfsumhverfi ferðamálafulltrúa (Byggðastofnun, janúar 2001)
-viðhorfskönnun meðal ferðamálafullrúa á þáttum tengdum starfsumhverfi þeirra.

2000

Fiskvinnsla og búseta (Byggðastofnun, nóvember 2000)
-greinargerð fyrir nefnd um fiskvinnslu.

Samantekt um gagnaflutninga (Byggðastofnun, október 2000)
-

Hverjir eru lánamöguleikar fyrirtækja á landsbyggðinni? (Byggðastofnun, maí 2000)
-úttekt á árangri af lánastarfsemi Byggðastofnunar.  Unnið af Nýsi hf. fyrir stjórn Byggðastofnunar. 

1999

Atvinnumál í Ísafjarðarbæ og Hrísey (Byggðastofnun, desember 1999)
-skýrsla um atvinnumál í Ísafjarðarbæ og Hrísey.  Unnið af Nýsi hf. fyrir stjórn Byggðastofnunar.

Byggðir á Íslandi - aðgerðir í byggðamálum (Byggðastofnun, nóvember 1999)
-greining landsins í atvinnuþróunarsvæði og tillögur til aðgerða. Unnið af þróunarsviði Byggðastofnunar.

Byggðir á Íslandi - fylgiskjöl 

Byggða- og atvinnuþróun á Írlandi (Byggðastofnun, nóvember 1999)
-skýrsla um ferð atvinnuráðgjafa og Byggðastofnunar til Írlands í nóvember 1999.

Nýsköpun í gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni (Iðntæknistofnun, september 1999)
-forverkefni unnið af Iðntæknistofnun fyrir Byggðastofnun, forsætisráðuneytið og Iðntæknistofnun.  Forathugun á hvaða verkerkefni gæti hugsanlega hentað til gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni.

Byggðavandinn og nýja byggðastefnan - orsakir byggðaröskunar og aðgerðir til úrbóta (Byggðastofnun, apríl 1999)
- skýrsla eftir Stefán Ólafsson.

Skipting útgjalda og stöðugilda hjá ríkissjóði og fyrirtækjum í meirihlutaeigu ríkisins 1994-1997 (Byggðastofnun, febrúar 1999)
-skýrslan er unnin með hliðsjón af ályktun Alþingis um stefnumótandi byggðaáætlun 1994-1997.  Megin markmiðið með þessari samantekt er að varpa ljósi á hvernig til hefur tekist frá þeim tíma sem ályktunin var samþykkt og jafnframt að skapa grundvöll til frekari samanburðar á þessu sviði í framtíðinni.  Skýrslan er unnin af Nýsi hf. fyrir stjórn Byggðastofnunar.

1998

Breyttir atvinnuhættir og byggðaþróun (Byggðastofnun, október 1998)
-grein eftir Dr. Bjarka Jóhannesson.

Hagkvæmniathugun á fyrirkomulagi fóðurframleiðslu í loðdýrarækt (Byggðastofnun, maí 1998)
-skýrsla til landbúnaðarráðherra, unnin af Benedikt Guðmundssyni þróunarsviði Byggðastofnunar.

Byggðastefna til nýrrar aldar (Byggðastofnun og Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, maí 1998)
-skýrsla unnin fyrir stjórn Byggðastofnunar. Ritstjóri Dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson.

Forsendur stefnumótandi byggðaáætlunar 1998-2002 (Byggðastofnun, apríl 1998)
-ástand og horfur í þróun byggðar og atvinnulífs.  Unnið af þróunarsviði Byggðastofnunar.

Svæðisbundin byggðaáætlun Vestur-Húnavatnssýsla (Byggðastofnun, febrúar 1998)
-skýrsla unnin á tímabilinu 1995-1996 og greinir frá byggðaþróun og stöðu atvinnulífs í Vestur-Húnavatnssýslu.

Byggðaáætlun fyrir Suðausturland 1998-2001 (Byggðastofnun, febrúar 1998)
-skýrsla sem greinir frá byggðaþróun og stöðu atvinnulífs í fimm sveitarfélögum á suðausturlandi. Staða svæðisins gagnvart atvinnulífi og byggðaþróun var könnuð og leitast var við að kanna möguleika til framtíðar.

1997

Búseta á Íslandi - Rannsókn á orsökum Búferlaflutninga (Byggðastofnun, nóvember 1997)
-rannsókn á orsökum búferlaflutninga á Íslandi.  Skýrsla unnin af Stefáni Ólafssyni fyrir Byggðastofnun.

Byggðir sem standa höllum fæti - greinargerð fyrir stjórn Byggðastofnunar (Byggðastofnun, október 1997)
-úttekt á horfum í búsetu í einstökum byggðum landsins, unnin af Þróunarsviði Byggðastofnunar fyrir stjórn.

Þýðing Kísiliðjunnar fyrir efnahag og atvinnulíf í Mývatnssveit (Byggðastofnun, október 1997)
-greinargerð um þýðingu Kísiliðjunnar.  Unnin fyrir stjórn Byggðastofnunar.

Þróun sauðfjárbúskapar á Íslandi tímabilið 1991-1996 (Hagþjónusta Landbúnaðarins, september 1997)
-skýrsla unnin að ósk Egils Jónssonar, stjórnarformanns Byggðastofnunar.

Svæðisbundin Byggðaáætlun - Miðfirðir Austurlands (Byggðastofnun, febrúar 1997)
-ástand og horfur í þróun byggðar, aðgerðir ríkisvalds og sveitarstjórnar, atvinnuþróunarstarf.

1994

Sjávarútvegur í byggðarlögum utan Vestfjarða (Byggðastofnun, október 1994)
-greinargerð unnin í tengslum við frumvarp til laga um aðgerðir á Vestfjörðum.

1993

Ferðaþjónusta - uppbygging og afkoma (Byggðastofnun, 1993)
-skýrsla unnin af Sigurborgu Kr. Hannesdóttur um ferðþjónustu.

Breyttar áherslur í byggðamálum (Byggðastofnun, júlí 1993)
-stefnumótandi byggðaáætlun 1994-1997.

1992

Flutningar í Eyjafirði 1992 (Byggðastofnun, desember 1992)
-yfirlit og staða flutningamála.  Úttekt á almenningssamgöngum og flutningamálum á starfssvæði Héraðsnendar Eyjafjarðar.

Áhrif samdráttar í sauðfjárrækt (Byggðastofnun, maí 1992)
-greinargerð unnin fyrir stéttarsamband bænda af þróunarsviði Byggðastofnunar til að meta fyrirsjáanlegan samdrátt í sauðfjárrækt.

1991

Fjarvinnsla (Byggðastofnun, maí 1991)
-skrá yfir einstaklinga og fyrirtæki á landsbyggðinni.

Suðurfirðir Austfjarða (Byggðastofnun, janúar 1991)
-byggð og atvinnulíf.  Byggðaáætlun fyrir Suðurfirði fyrir Suðurfjarðarhreppa á Austurlandi.

1990

Evrópska efnahagssvæðið og byggðaþróun (Byggðastofnun, desember 1990)
-skýrsla unnin fyrir að beiðni forsætisráðuneytisins.  Höfundur Sigurður Guðmundsson.

Mýrdalshreppur - atvinnulíf og byggðaþróun (Byggðastofnun, nóvember 1990)
-þetta verk sem er síðasti hluti athugunar Byggðastofnunar á atvinnulífi í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu er unnið að beiðni forsætisráðuneytisins.

Áhrif vaxandi samkeppni frá uppboðsmörkuðum í Evrópu um ferskan íslenskan fisk (Byggðastofnun, september 1990)
-vinnuskjal sem unnið var til að minna á og skýra ójafna samkeppnisstöðu íslenskra og evrópskra fiskvinnslufyrirtækja til kaupa á íslenskum fiski.

Hugleiðingar um landbúnað (Sigurður Guðmundsson Byggðastofnun, september 1990)
-grein er byggir á erindi sem Sigurður Guðmundsson flutti á aðalfundi félagsins Bændasynir hf á Eyrarbakka 29. september 1990.

Áhrif stóriðju á búsetu og vinnumarkað (Byggðastofnun, júní 1990)
-könnun á áhrifum nýs álvers á Vatnsleysuströnd, Þorlákshöfn og Hvalfirði. Sameiginleg athugun Þjóðhagsstofnunar og Byggðastofnunar.

Nýting villigróðurs (Byggðastofnun, júní 1990)
-leiðbeiningar um söfnun, verkun og sölu.

Átaksverkefni á Egilsstöðum og Seyðisfirði (Byggðastofnun, júní 1990)
-skýrsla verkefnisstjóra.

Áhrif stóriðju á búsetu og vinnumarkað (Byggðastofnun, mars 1990)
-könnun á áhrifum nýs álvers á höfuðborgarsvæðinu, í Eyjafirði eða Reyðarfirði. Sameiginleg athugun Þjóðhagsstofnunar og Byggðastofnunar.

Frá styrkjakerfi til heilbrigðs rekstrarumhverfis - Um byggðaaðgerðir á norðurlöndunum síðustu áratugin (Byggðastofnun og NordREFO, mars 1990)
-skýrsla eftir Kristófer Oliversson um samanburð á milli Norðurlandanna á sviði byggðaþróunar.

Fjármál sveitarfélaga (Byggðastofnun og Félagsmálaráðuneytið, janúar 1990)
-skýrsla nefndar um fjárhagsstöðu sveitarfélaga til félagsmálaráðherra.

1989

Kostnaður þéttbýlismyndunar - Áhrif fólksflutninga á höfuðborgarsvæðið (Byggðastofnun, desember 1989)
-skýrsla sem Ársæll Guðmundsson hagfræðingur vann fyrir Byggðastofnun til að kanna kanna ýmsa kostnaðarþætti við áframhaldandi vöxt mannfjölda á á höfuðborgarsvæðinu.

Rangárvallasýsla - ástand og horfur í atvinnumálum (Byggðastofnun, desember 1989)
-athugun á atvinnulífi í Rangárvallasýslu unnin að beiðni Forsætisráðherra.

Vestfirðir - byggðaáætlun (Byggðastofnun, júlí 1989)
-byggðaáætlun unnin fyrir Fjórðungssamband vestfirðinga.

V-Skaftafellssýsla austan Mýrdalssands - atvinnulíf og byggðaþróun (Byggðastofnun, júní 1989)
-athugun á atvinnulífi í Vestur-Skaftafellssýslu unnin að beiðni Forsætisráðherra.

1988

Vöruflutningar innanlands (Byggðastofnun, nóvember 1988)
-skýrsla unnin fyrir samgönguráðuneytið til að kanna tiltekin atriði í samgönguþjónustu.

1987

Fríiðnaðarsvæði á Suðurnesjum (Byggðastofnun, desember 1987)
-skýrsla um fríiðnaðarsvæði, unnin fyrir forsætisráðuneytið.

Útgerðarstaðir á Íslandi (Byggðastofnun, september 1987)
-skýrsla um stöðu og hlutverk sjávarútvegs á hinum ýmsu útgerðarstöðum á Íslandi

Byggðaáætlun fyrir Út-hérað (Byggðastofnun, september 1987)
-niðurstöður verks sem Byggðastofnun lét vinna að beiðni Búnaðarsambands Austurlands.  Úttekt á búskaparaðstöðu og yfirlit yfir atvinnu- og búsetumöguleika

Jarðgöng á Vestfjörðum (Byggðastofnun, júní 1987)
-skýrsla unnin af Birni Jóhanni Björnssyni til að áætla kostnað við gerð jarðganga sem tengdu saman Súgandafjörð, Önundarfjörð og Skutulsfjörð.

Loðdýrarækt á Íslandi (Byggðastofnun, janúar 1987)
-skýrsla um uppbyggingu loðdýraræktar á Íslandi

1986

Vinnumarkaðurinn (Byggðastofnun, febrúar 1986)
-skýrsla unnin af Byggðastofnun um vinnumarkaðinn á Íslandi 1984

Hér er hægt að sækja Acrobat Reader

Get Adobe Reader

Byggðastofnun  |  Ártorg 1  |  550 Sauðárkrókur  |  Sími 455-5400  |  Fax 455-5499  |  byggdastofnun@byggdastofnun.is  |  Opið frá kl. 8:30-16:00  | kt. 450679-0389

Skráning á póstlista