Auðlind til framtíðar
fimmtudagur 17.desember 2009 - Lestrar 256
Byggðastofnun í samstarfi við Handverk og hönnun, Hönnunarmiðstöð, Listaháskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð
Íslands, Ímark og Útflutningsráð Íslands auglýsir eftir umsóknum um stuðning við markaðssetningu erlendis á íslensku
handverki og hönnunarvörum.
Heildarráðstöfunarfé er tíu milljónir króna, hámarksstyrkur er tvær milljónir króna, en þó aldrei hærri en
50% af heildarkostnaði.
Markmið: Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða erlendis á handverki og hönnunarvöru.
Þátttökurétt hafa konur og fyrirtæki í eigu kvenna (a.m.k. 50%) með lögheimili á starfssvæði Byggðastofnunar.
Styrkjunum er ætlað að skapa aukin verðmæti og ný markaðstækifæri og eru liður í framkvæmd á aðgerð í Byggðaáætlun um stuðning við atvinnurekstur kvenna.









