Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Fréttir

Verkefnastefnumót Norðurslóðaáætlunar

Dagana 21. – 22. september n.k. verður haldið verkefnastefnumót íslenskra þátttakenda í verkefnum innan Norðurslóðaáætlunar í  Nýheimum, Höfn Hornafirði.


Meginmarkmið fundarins  er að

  • efla tengslanet þátttakenda
  • fara yfir helstu þætti er varða fjárhagsuppgjör, skýrslugerð og endurskoðun
  • ræða þátttöku verkefna í árlegri ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar  Lava 09 í Iðnó 10. – 11. nóvember n.k. og fyrirhugaðar verkefnakynningar í  tengslum við hana í Tjarnarsal, Ráðhúss Reykjavíkur
  • fara yfir þátttöku Íslands í áætluninni m.a. með verkefnakynningum
  • kynna í hvaða áherslur  áætlunarinnar vantar  verkefni
  • að ræða um aukið og bætt upplýsingaflæði og samstarf

Mikilvægt er að öll verkefni Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 sendi (1-3) þátttakendur á fundinn. Fundurinn er jafnframt opinn öllum sem áhuga hafa á að kynna sér áætlunina og framkvæmd hennar hér á landi

Skráningarform.  Óskast útfyllt og sent til thorarinn@byggdastofnun.is

Dagskrá

Fundarboð



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning