Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

ESPON-tengiliður (ECP)

Byggðastofnun auglýsir eftir háskóla til þess að vera tengiliður íslenskra stofnana við ESPON (European observation network on territorial development and cohesion) og evrópska samfélagið á sviði byggðarannsókna fram til 2013. Eftirsóknarvert er að tengiliðurinn (ECP, ESPON contact point) sé háskóli eða háskóladeild og sérstakur ábyrgðarmaður með mikla samfélagsmenntun, fær um að taka þátt í og stjórna samstarfsverkefnum tengiliða í öðrum löndum Evrópu.

Netverk ECP-tengiliða opnar ýmsa möguleika og er kostað af ESPON.

Áhugasamir eru beðnir um að lýsa eftirtöldum þáttum í bréfi sem berist Byggðastofnun eigi síðar en 15. september nk.:

  1. Fjöldi starfsfólks, menntun, reynsla af fjölþjóðlegu rannsóknastarfi og aðstaða til að leiða aðgengileg tækifæri út úr fjölþjóðlegu samstarfi.
  2. Reynsla og hæfni til þess að stjórna verkefnum, standa fyrir málþingum og koma niðurstöðum á framfæri.
  3. Hæfni til að leggja lið fjölþjóðlegu starfi.
  4. Stjórnunar-, fjárhags- og tæknilegar forsendur til að starfa við þau skilyrði sem sett eru af Uppbyggingarsjóðum ESB og ESPON, m.a. kröfur um framvinduskýrslur og endurskoðun.

Byggðastofnun mun yfir fara innsend gögn, ræða við forstöðumenn tilheyrandi stofnana og velja tengilið í framhaldi af því.

Nánari upplýsingar um ESPON er að finna hér á síðunni og heimasíðu ESPON, http://www.espon.eu/, og hjá Árna Ragnarssyni, starfsmanni þróunarsviðs Byggðastofnunar.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning