Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Fjármögnun verkefna

Stjórn Byggðastofnunar samþykkti á fundi sínum útlánaáætlun fyrir árið 2009.  Það er kunnara en frá þurfi að segja að aðstæður á fjármagnsmarkaði eru erfiðari nú en áður hefur þekkst.  Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að skerpa enn frekar á áherslum í útlánastarfseminni með það að megin markmiði að útlánageta stofnunarinnar nýtist sem allra best.

Í samræmi við þetta leggur Byggðastofnun einkum áherslu á eftirfarandi viðmið á árinu 2009:

  1. Vegin meðaláhætta allra útlána ársins 2009 verði ekki hærri en 10%.
  2. Miðað skal við að áhætta vegna eins eða fleiri tengdra aðila fari ekki yfir 150 mkr.
  3. Ekki verður lánað til endurfjármögnunar á langtímalánum viðskiptabanka og sparisjóða.
  4. Sérstök áhersla verði lögð á gjaldeyrisskapandi eða gjaldeyrissparandi verkefni.
  5. Sköpun eða varðveislu varanlegra starfa.
  6. Skerpa þarf á kröfum um eiginfjárframlag til nýrra verkefna til að auka möguleika á að verkefnið takist við þær aðstæður sem nú eru á fjármagnsmarkaði, auk þess sem telja verður að verðmæti og markaðshæfi veða sé nú almennt minna en framan af árinu 2008.
  7.  

Þá liggur fyrir, vegna aðstæðna á fjármagnsmörkuðum, að lánveitingar á árinu 2009 verða einungis í íslenskum krónum.

Fjármögnun verkefna er þríþætt; lán, styrkir og hlutafé. Hvorki eru veittir styrkir né hlutafé á árinu 2008.

Verðskrá

Frá og með 1. maí 2007 tók í gildi ný gjaldskrá.

Lántökugjald 1,80%
Kostnaður við skuldbreytingu (af vanskilum) 1,80% lágm. 5.000
Skilmálabreytinga á skuldabréfi í skilum 5.000
Myntbreyting á skuldabréfi 0,2% lágm. 20.000
Skuldskeyting  5.000
Veðleyfi 5.000
Veðbandslausn 5.000
Ný veðsetning 5.000
 Leyfi fyrir kvótaflutning 5.000
Áritun á skilyrt veðleyfi, samþykki síðari veðhafa 1.000
Seðilgjald 190
Áminning 500
Ítrekun 2.000
Aðvörun 3.000
Ábyrgðaþóknun 0,5-1,5%
Uppgreiðslugjald 1,00%
Þinglýsingargjald 2.000
Veðbókarvottorð úr tölvu 1.000
Greiðsluáskorun 15.125+vsk
Birtingakostnaður 1.840

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning