Atvinnuvegurinn.is

Byggðastofnun

Velkomin á heimasíðu Byggðastofnunar. Hér finnur þú upplýsingar um stofnunina.

Norðurslóðaáætlunin - Northern Periphery Programme (NPP)

Northern Periphery Programme

Meginmarkmið Norðurslóðaáætlunar 2007 – 2013 er að efla atvinnu-  efnahags-  og félagslega samvinnu svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.  Norðurslóðaáætlun er 1 af 5 svæðaáætlunum  Evrópusambandsins sem tilheyra INTERREG IV og sú eina sem Ísland tekur þátt í  (nánari  upplýsingar um INTERREG IV A og B áætlanirnar er að finna hér).  

Ísland var afar virkur þátttakandi á fyrra áætlunartímabili en í lok starfstíma hennar voru Íslendingar þátttakendur í 28 aðalverkefnum hér.  Í núgildandi áætlun 2007-2013 hafa verið samþykkt 14 verkefni með íslenskri þátttöku og má sjá yfirlit yfir þau hér.

Í Byggðaáætlun 2006 – 2009 var lagt til  að Ísland verði áfram þátttakandi í nýrri Norðurslóðaáætlun tímabilið 2007 – 2013.  Árlegt framlag Íslands til þátttöku í áætluninni eru um 400.000 €  og er íslensk þátttaka styrkt af því fjármagni.  Framlag Íslands til aðalverkefna er að hámarki 50% af heildarkostnaði.

Þátttökulönd og starfsvæði áætlunarinnar má sjá á meðfylgjandi korti en nákvæmari skilgreiningu svæða er að finna hér

Smelltu kortið til að sjá það í stærri upplausn

Landsskrifstofur  (Regional Contact Point) eru í hverju þátttökulandi og er þeim ætlað að aðstoða við leit að samstarfsaðilum, annast kynningu áætlunarinnar og vera í nánu samstarfi við þátttakendur í verkefnum.  Byggðastofnun gegnir hlutverki landsskrifstofu áætlunarinnar hér á landi. Ýmsir aðilar geta tekið þátt í NPP verkefnum svo sem sveitarfélög, félagasamtök, ríkisstofnanir, atvinnuþróunarfélög, fyrirtæki, háskólar og rannsóknarstofnanir. Þátttaka í einstökum verkefnum getur verið blönduð milli þessara aðila og sérstök áhersla er lögð á samstarf atvinnulífs, háskóla og rannsóknarstofnana. Í hverju verkefni þurfa að vera samstarfsaðilar frá a.m.k. þremur löndum, þar af verður eitt þeirra að vera aðildarríki Evrópusambandsins.

Áherslur áætlunarinnar eru eftirfarandi (úrdráttur):

Áhersla 1

Efling nýsköpunar og samkeppnishæfni svæða

  • Nýsköpun, samstarfsnet, samkeppnishæfni
  • Bætt aðgengi

Áhersla 2 

Sjálfbær þróun auðlinda náttúru og samfélags

  • Umhverfi sem styrkleiki norðurslóða og samhengi nýtingar og vernda.
  • Þróun samstarfs þéttbýlis og dreifbýlis og kynning  arfleifðar.

Ítarlega lýsingu á áherslum áætlunarinnar er að finna í Operational Programme  og almenna kynningu á áætluninni má nálgast hér.  Jafnframt skal bent á heimsíðu áætlunarinnar  en þar er hægt að nálgast allar nauðsynlegar upplýsingar.

Algengast er að umsækjendur sæki um forverkefni til að móta verkefnishugmyndir, finna samstarfsaðila og ljúka mótfjármögnun.  Almennt er heildarkostnaður við forverkefni að hámarki 30.000 € og framlag áætlunarinnar 60% eða 18.000 €. Almennt standa forverkefni í 3 - 6 mánuði eða lengur eftir umfangi verkefna.

Tengiliður áætlunarinnar er Sigríður Elín Þórðardóttir, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar.

Netfang: sigridur@byggdastofnun.is

Síðast uppfært 29.09.2011

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning