Byggðastofnun í samstarfi við Handverk og hönnun, Hönnunarmiðstöð, Listaháskóla Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Ímark og Útflutningsráð Íslandsauglýsir eftir umsóknum um stuðning við markaðssetningu erlendis á íslensku handverki og hönnunarvörum.
Heildarráðstöfunarfé er tíu milljónir króna, hámarksstyrkur er tvær milljónir króna, en þó aldrei hærri en 50% af heildarkostnaði.
Markmið: Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða erlendis á handverki og hönnunarvörum. Styrkjunum er ætlað að skapa aukin verðmæti og ný markaðstækifæri og eru liður í framkvæmd á aðgerð í Byggðaáætlun um stuðning við atvinnurekstur kvenna.
Þátttökurétt: Hafa konur og fyrirtæki í eigu kvenna (a.m.k. 50%) með lögheimili á starfssvæði* Byggðastofnunar.
Skilyrði: Verk/vara verður að vera tilbúin til markaðssetningar erlendis og að framleiðsla verksins/vörunnar fari að hluta eða öllu leyti fram á Íslandi.
Við mat á umsóknum verður horft til eftirfarandi þátta: Að verk/vara sé vönduð og samkeppnishæf. Markaðsáætlun sé hnitmiðuð, raunhæf og vel skilgreind. Kostnaðar- og verkáætlun sé trúverðug og vel skilgreind. Möguleg framþróun.
Framkvæmd: Rýnihópur metur umsóknir og velur verk/vörur tíu umsækjenda. Vörurnar/verkin sem rýnihópurinn velur verða til sýnis dagana 18.-21. mars 2010. Dómnefnd velur a.m.k. fimm verk og fá eigendur þeirra fjárhagslegan og faglegan stuðning við að koma verkinu/vörunni á markað erlendis. Val dómnefndar verður tilkynnt 21. mars á lokadegi Hönnunarmars 2010.
Umsóknum skal skilað rafrænt fyrir kl. 17:00 mánudaginn 1. febrúar 2010, umsóknareyðublað og leiðbeiningar eru neðst á þessari síðu.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Elín Þórðardóttir í síma 455-5400 eða sigridur@byggdastofnun.is.
Mikilvægt er að senda vandaða umsókn og er umsækjendum bent á að hægt er að fá ráðgjöf hjá Byggðastofnun,atvinnuþróunarfélögunum og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.









