Fara í efni  

Fréttir

Efling frumkvöðlakvenna á landsbygginni - lokaráðstefna haldin á Sauðárkróki

Ertu frumkvöðlakona? Áttu fyrirtæki? Ertu með hugmynd? Eða langar þig bara að efla tengslanetið? Vertu með!

Evrópuverkefnið Efling kvenfrumkvöðla á landsbyggðinni eða Female Rural Enterprise Empowerment (FREE) efnir til lokaráðstefnu í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki þann 18. apríl.    

Kveikjan að FREE verkefninu var að rannsóknir sýndu að frumkvöðlakonur á landsbyggðinni hafa oft ekki tök á því að ferðast um langan veg til að taka þátt í námskeiðum eða fundum um stofnun og rekstur fyrirtækja. Þær vilja hafa aðgang að fræðslu og gagnlegu efni í gegnum netið en auk þess eru tengslanet oft á tíðum ekki eins öflug og á þéttbýlli svæðum.

Verkefnið sem Vinnumálastofnun leiðir, er samstarfsverkefni sex aðila frá fimm löndum. Auk Vinnumálastofnunar tekur Byggðastofnun þátt ásamt aðilum frá Bretlandi, Búlgaríu, Króatíu og Litháen. Boðið var upp á fræðsluefni á netinu, þrjú tengslanet voru stofnuð á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og á Austurlandi og frumkvöðlakonum var boðið upp á að taka þátt í jafningjafræðslu á netinu þar sem rætt var um áskoranir og reynslu deilt. Sjá má nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins http://ruralwomeninbusiness.eu/is/

Dagskrá

Kl. 11.30 – 12:30     Húsið opnar og boðið verður upp á hressingu. Kynning á fyrirtækjum í eigu kvenna

Kl. 12.30 – 14:00     Kynning á FREE verkefninu og árangri þess, upplifun þátttakenda í hæfnihringjum og í tengslaneti

Kl. 14.00 – 14:50     Vinnustofur – skráning nauðsynleg

  • Hönnunarhugsun í fyrirtækjarekstri - Farið verður yfir helstu þætti hönnunarhugsunar og þátttakendur gera stutt verkefni til að fá innsýn í gildi hennar og framkvæmd. Með hönnunarhugsun er á skapandi hátt notast við hugsun og aðferðir til að nálgast verkefni, safna saman upplýsingum og spyrja gagnrýnna spurninga til að leita að nýrri eða betri lausn. Farið verður yfir helstu þætti hönnunarhugsunar og þátttakendur gera stutt verkefni til að fá innsýn í gildi hennar og framkvæmd. Umsjón: Elfa Hlín Pétursdóttir verkefnastjóri hjá Austurbrú.

  • Stefnumótun - Um er að ræða gagnvirka vinnustofu þar sem þátttakendur læra um stefnumótun í gegnum skemmtilegan leik. Um er að ræða gagnvirka vinnustofu þar sem þátttakendur læra um stefnumótun í gegnum leik. Hann snýst um að búa til vöru (kassa) sem þarf síðan að selja á markaði.  Þátttakendur þurfa síðan að huga að þáttum eins og leiðtogafærni, áhættu, teymisvinnu og hvernig á að verðleggja hluti. Vinnustofan verður haldin á ensku en þýdd á íslensku. Umsjón; Marina Larios, Inova og Ásdís Guðmundsdóttir, Vinnumálastofnun

  • Markaðssetning á samfélagsmiðlum – Þátttakendur gera stutt verkefni til að öðlast betri skilning á mikilvægi vel heppnaðar markaðssetningar á samfélagsmiðlum. Markaðssetning á samfélagsmiðlum er einföld og áhrifarík leið til að ná til hugsanlegs markhóps.  Hún gengur út á það að para saman fyrirtæki og neytendur sem hafa áhuga á vörunni eða að virkja þá sem fyrir eru og láta virði samskiptanna vaxa. Kynntar verða misvel heppnaðar tilraunir til markaðssetningar og þátttakendur gera stutt verkefni til að öðlast betri skilning á mikilvægi vel heppnaðar markaðssetningar á samfélagsmiðlum. Umsjón: Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi SSNV

Kl. 15.00 – 16:00     Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, leiðir þátttakendur ,,Fram í sviðsljósið“ Hagnýtur fyrirlestur um að koma sér/vöru/hugmynd á framfæri, standa með sér og nýta tækifærið vel. Sirrý fjallar á um það að standa með sér, beinn í baki með sjálfstraustið í lagi, nýta sér kvíðann og koma málinu í höfn. Hvernig á að undirbúa óundirbúna ræðu, halda flotta kynningu, skapa tengslanet og þora að skína.

Kl. 16.00                   Ráðstefnuslit

Nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna hér
Ef þú vilt taka þátt í vinnustofu þá þarf einnig að velja og skrá það hér
Öllum konum með eigin rekstur er boðið að kynna sig og sínar vörur í upphafi ráðstefnunnar. Skráning hjá Sveinbjörgu hjá SSNV sveinbjorg@ssnv.is eða í síma 455 2510.

Allir eru velkomnir og er þátttaka er þér að kostnaðarlausu


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389