Fara í efni  

Fréttir

Eyrarrósarlistinn 2019

Frá árinu 2005 hafa Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík veitt viðurkenningu í nafni Eyrarrósarinnar til afburða menningarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins. Eyrarrósinni er ætlað að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.

Alls bárust 30 umsóknir um Eyrarrósina 2019 hvaðanæva af landinu en sex þeirra hafa nú verið valin á Eyrarrósarlistann og eiga þar með möguleika á að hljóta tilnefningu til sjálfra verðlaunanna í ár.  

Á Eyrarrósarlistanum 2019 birtast nöfn þeirra sex verkefna sem eiga möguleika á að hljóta verðlaunin í ár. Sjálfri Eyrarrósinni fylgir tveggja milljón króna verðlaunafé en að auki munu tvö verkefnanna hljóta 500 þúsund króna verðlaun.

Eyrarrósarlistinn 2019:

  • Act Alone leiklistar- og listahátíð, Suðureyri
  • Gamanmyndahátíð Flateyrar
  • List í ljósi, Seyðisfirði
  • Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Norðanáttin (Nothern Wave), Snæfellsbæ
  • LungA skólinn, Seyðisfirði
  • Plan-B listahátíð, Borgarnesi

Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn þann 12. febrúar næstkomandi í Garði, Suðurnesjabæ, heimabæ alþjóðlegu listahátíðarinnar Ferskra Vinda sem er handhafi Eyrarróasarinnar frá síðasta ári. Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar mun afhenda verðlaunin.

Nánar um verkefnin á Eyrarrósarlistanum 2018

ACT ALONE, SUÐUREYRI

Leiklistar- og listahátíðin Act Alone, sem haldin verður í 16. sinn í sumar á Suðureyri, hefur markað sér algera sérstöðu á landsvísu með því að helga sig listum þar sem aðeins ein manneskja stendur á sviðinu. Frá upphafi hefur verið ókeypis á alla viðburði hátíðarinnar og er hún farin að laða að sér fastan hóp gesta bæði heimafólks og annarra. Hátíðin stendur yfir eina helgi í ágúst og boðið er upp á um 20 viðburði hverju sinni. Í ár verður boðið m.a. upp á leiklist, dans, tónlist, myndlist, ritlist og gjörningalist og sérstök áhersla lögð á fjölskylduviðburði.
 

GAMANMYNDAHÁTÍÐ FLATEYRAR

Undanfarin fjögur ár hefur Gamanmyndahátíð Flateyrar verið að festa sig í sessi. Hátíðin er ein af örfáum gamanmyndahátíðum Evrópu en um 30 íslenskar gamanmyndir eru sýndar á hátíðinni ár hvert; stuttmyndir eftir unga leikstjóra í band við þekktar myndir í fullri lengd.  Tæplega eitt þúsund gestir sóttu viðburði hátíðarinnar á síðasta ári sem fóru flestir fram í gömlum bræðslutanki á Flateyri. Auk gamanmynda býður hátíðin upp á gamansamar leiksýningar, tónleika, uppistand, hláturjóga, vinnusmiðjur, listamannaspjall o.fl.

List í ljósi hefur vaxið ásmegin ár frá ári og laðar nú að sér breiðan hóp listafólks og gesta til þátttöku í metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá. Í ár stendur hátíðin m.a. fyrir verkefni með aðkomu listafólks frá öllum Norðurlöndum sem munu skapa ljósaverk sérstaklega fyrir hátíðina. Hápunktur List í ljósi er listaganga  þar sem öll götu- og húsaljós í bænum eru slökkt og gestir geta gengið milli sýningarstaða til að njóta kvikmynda, innsetninga og ljósverka af ýmsum toga. Rík áhersla er lögð á þátttöku almennings í hátíðinni sem er bæði ókeypis og fjölskylduvæn. 

LungA skólinn er tilraunakenndur jarðvegur fyrir sköpun, listir og fagurfræði sem rekinn hefur verið af miklum metnaði á Seyðisfirði frá vorönn 2014 í góðum tengslum við LungA hátíðina. Hann er listaskóli fyrir þá sem hafa opinn huga, fyrir þá ótömdu og fyrir þá sem vilja rannsaka. Skólinn ýtir undir sérstöðu hvers einstaklings og styður við bakið á nemendum svo þeir finni sér sína leið í átt að sterkari sjálfsmynd, ásamt því að þroskast, skilja betur heiminn og finna sitt hlutverk í honum.  Í 84 daga – eða 12 vikur fá um það bil 20 ungmenni tækifæri til að þroska sig sem listamenn undir leiðsögn reynslumikils listafólks víðs vegar að úr heiminum. 

 

NORÐANÁTTIN / NORTHERN WAVE, SNÆFELLSBÆ

Northern Wave er eina alþjóðlega stuttmyndahátíðin á Íslandi en hún verður haldin í tólfta sinn í ár og hefur nú fest rætur í Frystiklefanum á Rifi, Snæfellsbæ.  Hátíðin býður upp á fjölbreytt úrval alþjóðlegra stuttmynda, hreyfimynda, vídeóverka og íslenskra tónlistarmyndbanda, auk viðburða eins og fiskiréttasamkeppni, fyrirlestra, vinnustofur og tónleika. Markmið hátíðarinnar er að auka menningarframboð á landsbyggðinni og sameina fólk úr ólíkum bæjarfélögum, af ólíkum þjóðernum og frá ólíkum listgreinum.

PLAN-B LISTAHÁTÍÐIN, SNÆFELLSBÆ

Í þrjú ár hefur grasrótar-myndlistarhátíðin Plan-B verið að festa sig í sessi í Borgarnesi og nærumhverfi. Um er að ræða alþjóðlega hátíð sem er vettvangur fyrir ungt listafólk sem er nýlega farið að vekja athygli á sviði myndlistar og gjörningalistar en er einnig opin reynslumeira listafólki. Plan-B leggur áherslu á tilraunakennda og ögrandi list.  Hátíðin fer fram víðs vegar í Borgarnesi í óhefðbundnum rýmum, s.s. yfirgefnum verksmiðjum, geymslum, skemmum og hálfkláruðum byggingum. 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389