Fara í efni  

Fréttir

Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar

Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar
Frá afhendingu Landstópans 2016

Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn verður í Miðgarði í Varmahlíð þriðjudaginn 25. apríl nk. verður í sjöunda sinn veitt viðurkenning undir heitinu „Landstólpinn – samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“.

Landstólpinn er veittur einstaklingi, fyrirtæki eða hópi/verkefni á vegum fyrirtækis eða einstaklinga, fyrir framtak sem vakið hefur athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags. 

Eftirtaldir hafa hlotið Landstólpann:

  • 2011:  Jón Jónsson, menningarfulltrúi og frumkvöðull á Ströndum
  • 2012:  Örlygur Kristfinnsson, forstöðumaður Síldarminjasafnsins á Siglufirði
  • 2013:  Þórður Tómasson safnvörður á Skógum undir Eyjafjöllum
  • 2014:  Norðursigling á Húsavík
  • 2015:  Vilborg Arnarsdóttir á Súðavík vegna verkefnsins Raggagarður
  • 2016:  Álftagerðisbræður og Stefán Gíslason.

Við óskum eftir tillögum um handhafa þessarar viðurkenningar. Að þeim fengnum mun dómnefnd velja úr. Eftirfarandi þætti má hafa í huga við valið:

Hvort viðkomandi hafi:

  • gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
  • aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
  • orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
  • dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni.

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.

Við viljum undirstrika sérstaklega að ekki er nauðsynlegt að viðkomandi aðili sé þekktur á landsvísu, fremur er horft til þess sem hann hefur gert til eflingar sinni heimabyggð. Drífandi einstaklingur sem hefur á einhvern hátt byggt upp samfélag sitt með frumkvæði sínu væri til að mynda verðugur handhafi Landstólpans. Viðurkenningin er þó engan veginn bundin við einstaklinga og þessi lýsing gæti því allt eins átt við fyrirtæki eða félagasamtök svo dæmi sé tekið.

Tillögum má skila á netfangið landstolpinn@byggdastofnun.is

Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir í síma 455-5400 eða netfangið sigga@byggdastofnun.is.

Frestur til að koma ábendingum til skila rennur út þriðjudaginn 28. febrúar 2017.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389