Fara í efni  

Fréttir

Norðurslóðaáætlunin 2014-2020 auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki

Norðurslóðaáætlunin (NPA) er samstarfsverkefni Finnlands, Svíþjóðar, Skotlands, Írlands, Norður-Írlands, Íslands, Grænlands, Færeyja og Noregs. Markmið NPA er að aðstoða íbúa á norðurslóðum við að skapa þróttmikil og samkeppnishæf samfélög með sjálfbærni að leiðarljósi.

Megináherslur NPA á sjötta umsóknarfresti eru:

1. Nýsköpun
1.1 Yfirfærsla nýrrar tækni og þekkingar
*1.2 Nýsköpun í opinberri þjónustu

2. Frumkvöðlastarfsemi.
*2.1 Efla stoðkerfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja
2.2 Stækkun markaða

3.  Endurnýjanlegir orkugjafar og orkusparnaður
3.1 Aukin notkun orkusparandi úrræða og endurnýjanlegrar orku

4.  Samfélag og menningarleg arfleið og verndun auðlinda
4.1 Efla sjálfbæra umhverfisstjórnun

Nánari upplýsingar um áherslur, forgangsverkefni og umsóknarkerfi er að finna hér

* Áherslusvið 1.2 og 2.1 eru aðeins opin umsækjendum sem sóttu um verkefnastuðning á fimmta umsóknarfresti og fengu ábendingar og tilmæli frá stjórn NPA um að sækja um aftur á sjötta umsóknarfresti.  Þátttakendum í samþykktum forverkefnum sem enn eru í gangi er einnig heimilt að sækja um verkefnastuðning á áherslusviðum 1.2 og 2.1.

Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 2018 til klukkan 23:59 á Kaupmannahafnartíma.

Umsóknaraðilar verða að lágmarki að vera þrír frá þremur samstarfslöndum og a.m.k. einn þarf að vera frá ESB landi, þ.e. Finnlandi, Svíþjóð, Skotlandi, Írlandi eða Norður-Írlandi. Heildarstærð verkefna er 2 milljónir evra. Hámarksstyrkur til íslenskra aðila er 60% og mótframlag er 40%, en styrkir til  fyrirtækja eru háðir 50% mótframlagi. Hámarksstyrkur til íslenskra aðila getur þó ekki orðið hærri en 150.000 evrur. Umsóknaraðilar geta verið opinberar stofnanir, sveitarfélög, landshlutasamtök rannsóknarstofnanir, menntastofnanir, atvinnuþróunarfélög, frjáls félagasamtök, félagsleg fyrirtæki og lítil og meðalstór fyrirtæki. Fyrirtæki getur verið þátttakandi í verkefnum á áherslusviðum 1., 2., 3. og samstarfsaðilar í verkefnum á áherslusviði 4.

Mikilvægt er að verkefni skili af sér afurð vöru og/eða þjónustu sem eflir atvinnulíf, sjálfbæra þróun í samfélögum og/eða eykur öryggi íbúa á norðurslóðum.  Handbók NPA er að finna hér

How to Apply Seminar verður haldið í Kaupmannahöfn 24. október 2018.

Nánari upplýsingar veitir landstengiliður NPA á Íslandi, Sigríður Elín Þórðardóttir á Byggðastofnun, netfang sigridur@byggdastofnun.is og sími 455 5400.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389